Munið endurskinsmerkin
Við viljum minna börn sem fullorðna á að nota endurskinsmerki nú þegar dimmasti árstíminn stendur yfir.
Endurskinsmerki er hægt að fá víða s.s. í lyfjaverslunum og barnavöruverslunum. Einnig eru ýmsir aðilar sem hafa gefið börnum sem fullorðnum endurskinsmerki. Við viljum þó benda foreldrum á að hangandi endurskinsmerki sem eru hörð hafa valdið tannáverkum hjá börnum þegar þau hafa slegist í þau. Mjúk endurskinsmerki eru því hentugri fyrir yngri börn.
