Sími : 5 800 900
Árvekni-slysavarnir barna

Slysavarnir barna í jólamánuði

1.12.2002

N

Sælgæti og smáhlutir

Árið 2001 gáfu Árvekni, Löggildingarstofa, Hollustuvernd ríkisins, Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur og Rauði kross Íslands út bæklinginn "Sælgæti og smáhlutir geta valdið köfnun". Þar koma fram ýmsar upplýsingar sem vert er að hafa í huga þegar verið er að velja sælgæti og leikföng fyrir barnið. Þar sem það er staðreynd að jólin eru tími sætinda og gjafa teljum við mikilvægt að benda á þetta.  Sérstaklega viljum við minna jólasveinana á að hafa þetta í huga þegar þeir velja í skóinn fyrir öll góðu börnin.

Ung börn, sérstaklega yngri en 3ja ára, setja hluti upp í munninn.  Gætið því að því að smáhlutir séu ekki þar sem þau ná til.  Til að mæla hvort smáhlutur er of lítill fyrir barn yngra en 3ja ára er hægt að nota kokhólkinn. 

Gæta skal að því að gefa ekki börnum undir átta ára aldri sælgæti sem er stærra en 2 cm í þvermál.  Stór brjóstsykur, harðar karamellur, tyggjókúlur og seigt gúmmí getur valdið köfnun hjá yngri börnum.  Börn á þessum aldri tyggja ekki eins vel og þau sem eldri eru, einnig er lítið pláss í munni þeirra svo þeim er hættara við að kafna en eldri börn.  Veljið sælgætið því með þetta í huga.  Venjið barnið á að sitja kyrrt á meðan það borðar, líka sælgæti, og leyfið því ekki að hlaupa um með fullan munninn.

Hnetur eru mjög varasamar fyrir börn yngri en átta ára.  Það er ekki einungis hætta á að þær standi fastar í kokinu heldur er einnig hætta á að þær fari ofan í lungu.

Kerti og kertaskreytingar

Mikilvægt er að huga vel að eldvörnum á heimilinu.  Alltof oft heyrast fréttir af eldsvoðum um jól og áramót sem rekja má til kertaljóss.  Sjaldgæft er að eldur kvikni vegna jólasería og aðventuljósa.  

Mikilvægt er að huga vel að staðsetningu kertaljóss.  Ekki ætti að setja það nærri neinu eldfimu s.s. gardínum.  Setjið ekki servíettu undir kertið en það getur kviknað í henni ef hún fýkur upp t.d. vegna dragsúgs.  Mjög mikilvægt er að skilja aldrei eftir logandi kerti í mannlausu herbergi.

Sprittkerti geta verið varasöm fyrir lítil börn.  Dæmi eru um að þau hafi brennst illa eftir að hafa fengið yfir sig heitt vaxið upp úr.

Útikerti setja skemmtilegan svip á jólahátíðina.  Það er þó afar mikilvægt að huga vel að því hvar það er sett.  Best er að hafa það í þar til gerðum kertastjaka fjarri gönguleið, en dæmi eru um að fólk hafi brennst illa á fótum eftir að hafa rekið sig í kerti og fengið heitt vaxið yfir sig.  Látið kertið ekki standa t.d. undir þakrennu þar sem vatn getur lekið ofan á það, því það getur valdið því að vaxið slettist.

Brýnið fyrir börnunum að fikta ekki með eld og kveikja ekki á kertum nema einhver fullorðinn sé hjá.  Mörg börn hafa brennst illa í kringum hátíðarnar, sérstaklega áramótin eftir að hafa verið að leika sér með eldspýtur.  

Bakstur

Eitt af því sem ómissandi er fyrir jólin er smákökubakstur.  Algengt er að börnin fái að hjálpa til við hann.  Mikilvægt er að undirbúa bakstur með börnunum vel og gefa sér góðan tíma í hann.  Ekki gera ráð fyrir að baka margar tegundir með börnin með þér.  Til að fyrirbyggja að barnið brenni sig er mikilvægt að ganga þannig frá hlutum að öryggi þess sé tryggt.  Ef hurðin á bakaraofninum hitnar mikið ætti að vera á honum þar til gerð öryggishlíf.  Einnig ætti að vera hlíf fyrir hellurnar á eldavélinni svo tryggt sé að barnið geti ekki sett hendurnar á þær.  Ef hægt er ætti að nota innri hellurnar og ætíð gæta þess að snúa pottsköftum inn á við.  Gætið þess einnig að leggja ekki heitar bökunarplötur þar sem barnið nær til.  Leyfið barninu ekki að nota beitt áhöld.

Eitranir

Jólastjarnan hefur ertandi safa bæði í blöðum og blómum.  Berist safi úr henni í augun getur það verið mjög ertandi.  Það er mjög mikilvægt að skola augun strax ef safi berst í þau.  Ef plantan er tuggin getur hún valdið sárri ertingu og blöðrumyndun í munninum.  Þannig getur tungan og slímhimnan í kokinu bólgnað upp í verstu tilfellunum.  Ertingin kemur ekki endilega fram strax heldur geta liðið allt að 15-20 mínútur þar til einkennin koma fram.  Hún líður síðan venjulega hjá á einum sólarhring.  Rétt er að hafa strax samband við Eitrunarmiðstöð í síma 543 2222  ef barn setur blað eða blóm í munninn. 

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica