Enga aukahluti á bílbelti barnabílstóla!
Í síðasta tölublaði Uppeldis (5. tbl.) á bls. 8. birtist hugmynd frá móður þar sem hún segir frá því að hún hafi saumað smellur og bönd af gömlum reiðhjólahjálmi á belti barnabílstóls því dóttir hennar vildi aldrei sitja rétt í honum. Hún klæddi sig alltaf úr beltunum með því að renna höndunum undir beltin sem liggja yfir axlirnar. Í bílstólnum er 5-punkta belti.
Í fyrstu virðist þetta góð hugmynd en því miður er hún afar hættuleg og því mikilvægt að aðrir foreldrar fari ekki að þessum ráðum. Ástæðurnar fyrir því að ekki má sauma aukabúnað á belti barnabílstóla eru eftirfarandi:
Í fyrsta lagi verður að vera tryggt að hægt sé að losa barn úr beltum barnabílstóls með einu handtaki ef bíllinn lendir í umferðaróhappi. Mörg dæmi eru um það hér á landi, þar sem bílveltur eru tíðar, að bílar hafi oltið út í ár og vötn og hefur oft litlu munað að illa færi. Í kröfum sem gerðar eru til öryggisbúnaðar fyrir börn í bílum er m.a. tekið fram að auðvelt eigi að vera að losa barn úr bílstól með einu handtaki.
Í öðru lagi eru belti bílstólsins hönnuð þannig að högg sem verður t.d. í árekstri dreifist á þá hluta líkamans sem best þola álagið. Með því að setja auka bönd og festingar yfir viðkvæmt brjósthol barns getur myndast mikið högg við árekstur og valdið alvarlegum áverkum á því.
Árlega leita margir foreldrar með samskonar vandamál til Árvekni og Umferðarstofu og vilja fá upplýsingar um einhvern búnað sem hægt er að nota til að koma í veg fyrir að barn/börn losi sig úr bílstólnum. Besta ráðið sem hægt er að gefa er að foreldrar verða að taka á þessu sjálfir og brýna fyrir börnum sínum að losa sig aldrei úr bílstól á meðan bíllinn er á ferð. Þetta er eitthvað sem þeir mega alls ekki gefa eftir. Foreldrar hafa talað um að venjulega vari þetta vandamál aðeins í stuttan tíma og að það gagnist vel að banna börnunum að gera þetta. Eini búnaðurinn sem hægt er að mæla með eru þar til gerð leikborð eða tuskudýr sem útbúin eru með frönskum rennilás.
Ástæðan fyrir því að barnið reynir að losa sig úr bílstólnum getur verið sú að illa fari um barnið í stólnum t.d. vegna þess að belti hans eru ranglega stillt eða barnið of mikið klætt. Mikilvægt er að fara yfir beltin reglulega og laga t.d. snúninga og stillingar á beltunum, út frá þeim leiðbeiningum sem fylgja stólnum. Kynntu þér frekar leiðbeiningar um öryggi barna í bílum hér.
Herdís L. Storgaard
