Sími : 5 800 900
Árvekni-slysavarnir barna

10 mánaða gamalt barn brenndist illa

13.12.2002

Á Fréttavef Morgunsblaðsins í dag 13. desember er sagt frá 10 mánaða barni sem brenndist illa þegar að sjóðandi heit sósa helltist yfir það í heimahúsi í Reykjavík. Barnið var í göngugrind og náði í skaft potts sem var á eldavél, með þeim afleiðingum að sósan heltist yfir það.

Að gefnu tilefni vill Árvekni, benda foreldrum og öðrum sem gæta lítilla barna á að göngugrindur geta verið mjög hættulegar börnum og í raun er ekkert sem mælir með því að þær séu notaðar.

Þetta er annað slysið hér á landi á stuttum tíma þar sem barn brennist af því að það er í göngugrind og nær í hlut með heitum vökva. Hér á heimasíðunni er frétt um göngugrindur og þær hættur sem þeim fylgja frá 12. nóvember síðastliðinn.

Helstu hættur við göngugrindur eru:

  • Börn geta dottið niður stiga og hlotið alvarlega höfuðáverka og beinbrot.

  • Börn geta brennt sig vegna þess að þau sitja upprétt og eiga auðveldara með að ná í hættulega hluti sem þau annars ættu erfiðara með að ná til.

  • Börn geta drukknað. Þau geta dottið ofan í baðkar fullt af vatni.

  • Börn geta orðið fyrir eitrun þar sem þau eiga á allan hátt auðveldara með að nálgast hluti

  • Börn geta meitt sig á fótum og höndum ef þau rekast á hluti.

Það er enginn ávinningur fyrir barnið að nota göngugrind

Margir foreldrar telja að barnið læri fyrr að ganga ef það notar göngugrind, en svo er ekki.  Sum börn fá vöðvaverki af því að nota göngugrindur.  Álag á bak barnsins er mikið og þegar það hættir að nota göngugrindina eftir að hafa lært að ganga í henni þarf það að læra aðra göngutækni.  Rannsóknir sýna að börn sem nota göngugrindur fara að ganga að meðaltali tveimur vikum seinna en þau börn sem ekki nota slíkar grindur.

Slys í göngugrindum verða fæst þegar börnin eru ein heldur verða þau oftar þegar verið er að fylgjast með þeim eða einhver fullorðinn er nálægt.  Foreldrar átta sig oft ekki á þeim hraða sem barnið nær í göngugrindinni og ná oft ekki að koma í veg fyrir slysið þrátt fyrir að þeir sjái í hvað stefnir.

 Nokkur atriði sem hafa þarf í huga við notkun göngugrinda

  • Skoðið vel allar merkingar á göngugrindinni áður en notkun hefst.  Á henni ættu að vera upplýsingar um hámarksþyngd og fleira. 

  • Mikilvægt er að barnið hafi náð 6 mánaða aldri áður en að það byrjar að nota göngugrindina.   Ekki má þó einungis miða við aldurinn heldur verður einnig að horfa á þroska barnsins.  Barnið verður að geta haldið höfði og setið óstutt.  Börn eiga ekki vera lengur en 10-20 mínútur í senn í grindinni.  Ekki er æskilegt að nota göngugrind eftir 15 mánaða aldur, þó að barnið sé ekki farið að ganga óstutt.

  • Barnið þarf að ná með báðum fótum niður á gólf, svo ekki sé hætta á að það renni úr sætinu. 

  • Skiljið barnið aldrei eftir eftirlitslaust í göngugrind.  Hafið augun á því allan tímann og farið ekki langt frá því á meðan það er í grindinni.

  • Leyfið barninu ekki að vera í göngugrind nálægt stigum, þrepum eða þröskuldum.  Lokið hurðum og setjið öryggishlið fyrir stiga.  Ekki er mælt með að nota svokölluð "þrýstihlið" fyrir stigann þar sem barnið getur ýtt sér af miklu afli á það, með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.

  • Verið viss um að á gólfinu sé ekkert sem getur valdið því að göngugrindin sporðreisist, t.d. lausar mottur eða aðrir lausir hlutir.

  • Til að fyrirbyggja brunaslys, leyfið barninu ekki að vera í göngugrindinni nálægt heitum ofnum, arni eða öðrum heitum hlutum.  Gangið frá rafmagnssnúrum þannig að barnið nái ekki að toga yfir sig þung og/eða heit rafmagnstæki.

  • Ef á göngugrindinni eru leikföng s.s. símar og hringlur er mikilvægt að fylgjast með því að þau séu vel festir og ekki sé hætta á að þau losni af. 

  • Haldið ekki á göngugrindinni á meðan barnið er í henni.

Að lokum viljum við benda á það að þessi búnaður er alls ekki nauðsynlegur fyrir börn og getum við alls ekki mælt með honum.

Herdís L. Storgaard
- framkvæmdastjóri Árvekni-

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica