Sími : 5 800 900
Árvekni-slysavarnir barna

Skotheld um áramótin

20.12.2002

Íslensk áramót eru vel þekkt um allan heim fyrir það hversu mikið af flugeldum er skotið upp til þess að fagna nýju ári. Því fylgir þó ekki einungis gleði því þeir eru ófáir sem hafa hlotið alvarleg

Árið 1999 sendu Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, Árvekni, Löggildingarstofa og Samband íslenskra tryggingafélaga frá sér upplýsingaspjaldið "Skotheld um áramótin" þar sem fram koma ábendingar um hvað þarf að hafa í huga við notkun skotelda. Hægt er að smella á myndina til þess að skoða spjaldið betur.

Á þessu spjaldi koma eftirfarandi ábendingar fram:

Undirbúningur

  • Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja skoteldum

  • Breytið ekki eiginleikum skotelda

  • Geymið skotelda á öruggum stað

  • Gerið ráðstafanir vegna gæludýra - þau eru viðkvæm fyrir hávaða

  • Veljið ábyrgan aðila til að stjórna aðgerðum á skotstað

Hvað þarf

  • Öryggisgleraugu og hanska

  • Mikilvægt er að vera ekki í eldfimum fatnaði

  • Hólk til að skorða flugelda

  • Slétt og stöðugt undirlag á opnu svæði fyrir skotkökur/gos o.þ.h.

  • Sjúkrakassa til taks

Þegar skotið er upp

  • Skjótið ekki í skoteldum nærri húsum og gætið þess að loka gluggum og hurðum

  • Kveikið í skoteldum með útréttri hendi - bogrið ekki yfir þeim

  • Hafið sérstakar gætur á börnum

  • Víkið strax frá eftir að kveikt hefur verið í skoteldum - haldið öðrum í fjarlægð

  • Reynið ekki að kveikja aftur í skoteldum sem áður hefur verið kveikt í

  • Skjótið ekki upp skoteldum við blákesti

  • Gerið viðeigandi ráðstafanir vegna mögulegrar eldhættu af völdum skotelda

Stjörnuljós og handblys

  • Látið börn aldrei meðhöndla stjörnuljós án eftirlits fullorðinna

  • Látið börn aðeins hafa eitt stjörnuljós í einu

  • Haldið stjörnuljósi og handblysi frá líkama

  • Handblys eru varasöm börnum og unglingum

Að lokinni sýningu

  • Fjarlægið notaða skotelda með varúð

  • Farið aftur yfir svæðið daginn eftir og fjarlægið skoteldaleifar

Með því að fylgja þessum ábendingum um meðferð skotelda, stuðlið þið að slysalausum áramótum. Við hvetjum ykkur til þess að kynna ykkur viðbrögð við bruna hjá Rauða krossi Íslands.  Munið símanúmer Neyðarlínunnar 1-1-2.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica