Er barnið þitt ávallt öruggt í umferðinni?
Í fréttum undarnfarnar vikur og mánuði hefur því miður verið sagt frá allmörgum slysum á börnum sem hefði mátt fyrirbyggja með aðgæslu. Dæmi eru um að mjög ung börn séu ein að leika sér úti eða á ferðinni án gæslu fullorðinna. Slíkt verður að teljast til vanrækslu á börnum. Þá eru dæmi um eldri börn sem taka mikla áhættu t.d. með því að stökkva út á götu án þess að gæta að sér, oft með skelfilegum afleiðingum.
Fræðsla um slysavarnir þarf að byrja snemma og á heimilunum. Ábyrgðin liggur fyrst og fremst hjá foreldrum. Þeir verða sjálfir að vera góð fyrirmynd og þeir verða að fræða börnin sín. Aðrir aðilar svo sem heilsugæsla, leikskólar og skólar eru foreldrum og börnum til stuðnings.
Notkun endurskinsmerkja er ódýr líftrygging en þau eru því miður alltof sjaldan notuð. Við sem erum fullorðin verðum þarna að vera góð fyrirmynd. Ábyrgðin liggur fyrst og fremst hjá okkur. Það er einnig á ábyrgð foreldra og annarra fullorðinna að gæta lítilla barna sem ekki hafa þroska og getu til að gæta sín sjálf. Þá þarf að kenna börnum snemma á lífsleiðinni að forðast hættur í umferðinni og að fara eftir umferðareglum og ekki síst að vera þeim gott fordæmi.
Ágætu foreldar gleymið því ekki að því fylgir mikil ábyrgð að eiga börn. Á liðnu ári hafa 5 börn látist í umferðinni og nokkur slasast alvarlega. Þetta ár var með verstu árum í langan tíma. Láttu ekki barnið þitt bætast í hópinn.
Katrín Davíðsdóttir barnalæknir á Miðstöð heilsuverndar barna og formaður Félags íslenskra barnalækna og Herdís L. Storgaard hjúkrunarfræðingur og framkvæmdastjóri Árvekni.
