Blöðrur geta verið lífshættulegar fyrir smábörn
Mikilvægt er að börn yngri en 6-8 ára leiki sér ekki að óuppblásnum blöðrum nema undir eftirliti fullorðinna. Óuppblásnar blöðrur geta verið afar varasamar, sérstaklega fyrir ung börn, vegna köfnunarhættu. Börnum er óhætt að leika sér að uppblásnum blöðrum en fullorðnir ættu að fjarlægja þær strax ef þær springa. Vert er að benda á að eldri börn hafa verið hætt komin, þegar þau hafa verið að búa til kúlur úr sprungnum blöðrum
Í Bandaríkjunum valda blöðrur flestum köfnunarslysum og vitað er um tilfelli hér á landi þar sem litlu hefur mátt muna. Það er því mikilvægt að vera alltaf á varðbergi þar sem blöðrur eru í umferð.
Það eru vinsamleg tilmæli okkar til fyrirtækja og stofnana að börnum séu ekki gefnar óuppblásnar blöðrur en það er í lagi að gefa þeim blöðrur sem hafa verið blásnar upp ef foreldrarnir leyfa það.
