Öryggi barna í flugi
Flugmálastjórn hefur þó veitt undanþágu frá þessari reglu m.a. vegna þess að í ákveðnum tilfellum getur slíkt belti skaðað barnið frekar en verndað það. Um þetta er hægt að lesa nánar í reglugerð um mannflutninga í loftförum
Í bréfi Flugmálastjórnar kemur einnig fram að öryggismál barna yngri en 2ja ára hafi verið rædd á fundum JAA (Joint Aviation Authorities Europe), en enn hafi ekki komið fram neinar nýjar og traustar rannsóknarniðurstöður varðandi þessi mál. JAA hefur því ekki lagt fram neinar nýjar reglur.
Í Bandaríkjunum hefur FAA (Federal Aviation Administration) gefið út leiðbeiningar um að mikilvægt sé að foreldrar ferðist með börn yngri en 2ja ára í barnabílstólum. Þar eru bílstólar sérstaklega merktir ef þeir uppfylla kröfur FAA, þ.e.a.s. ef þeir henta til notkunar í flugi. Skýrar reglur eru um það hvernig festa eigi stólana í sætin í flugvélunum. Börn sem fest eru í barnabílstóla eru mun betur varin ef flugvélinni hlekkist á eða skyndileg ókyrrð verður í lofti heldur en börn sem sitja í fangi foreldra sinna. Mikilvægt er að börnin séu fest eins og allir aðrir farþegar á meðan á fluginu stendur. Barnabílstólar sem markaðsettir eru á Evrópska efnahagssvæðinu bera ekki vottun FAA.
Töluvert er um fyrirspurnir til Árvekni um öryggi barna í flugvélum og teljum við mikilvægt að taka fastari tökum á þessum málum. Við munum halda áfram að fylgjast með þróun þessara mála. Hægt er að lesa einfaldar leiðbeiningar hér.
