Lá við stórslysi í leikskóla þegar barn stökk úr gluggakistu með snúru úr rimlagardínu um hálsinn
Við viljum benda foreldrum og starfsfólki í leik- og grunnskólum á þessa hættu því þetta er alls ekki fyrsta slysið að þessum toga sem orðið hefur á síðustu árum. Sem betur fer hafa þó börnin ekki hlotið alvarlegan skaða af.
Mikilvægt er að foreldrar og aðrir átti sig einnig á því að börn geta líka hengst ef þau stinga höfðinu á milli rimla í gardínum og stökkva síðan niður úr gluggakistunni.
