Sími : 5 800 900
Árvekni-slysavarnir barna

Lá týndur undir rúmi

9.4.2003

Í Morgunblaðinu 8. apríl síðastliðinn er sagt frá því að 6 ára drengur hafi verið talinn týndur og leitað hafi verið að honum í einhvern tíma. Sem betur fer fannst hann heill á húfi, sofandi undir rúmi á heimili sínu. Börn á þessum aldri leika sér mikið í feluleik og hika ekki við að skoða ólíklegustu staði á heimili sínu.  Það er því mikilvægt að leita alltaf af sér allan grun um að barnið sé ekki heima áður en farið er að leita að því utan dyra.

Fyrir nokkrum árum lá við stórslysi þegar 3 ára drengur hafði troðið sér inn í þurrkara og tekist að loka hurðinni með þeim afleiðingum að hann gat ekki komist út. Drengurinn var lokaður þar inni í tæpa tvo tíma meðan leitað var að honum í hverfinu. Um tíma var talið að hann hefði farið niður í fjöru og jafnvel dottið í sjóinn.  Móðir hans fann hann síðan þegar hún fór aftur yfir allt húsið til að vera viss að hann væri ekki þar.  Sem betur fer er ekki hætta á köfnun í þurrkurum en drengurinn hafði svitnað mjög mikið og var orðin þrekaður af vökvatapi.

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica