Barn féll út um glugga
Mikilvægt er fyrir foreldra ungra barna að gæta þeirra vel þar sem þau eru stöðugt að kanna umhverfi sitt. Þau ná dag frá degi, meiri færni í að takast á við hlutina en þó án þess að hafa vit á að forðast auðsýnilegar hættur í umhverfinu. Foreldrar þurfa að gera sér grein fyrir því að börn geta í fyrsta lagi forðast auðsýnilegar hættur í umhverfinu þegar þau hafa náð 10- 12 ára aldri, vegna skorts á líkamlegum þroska.
Það er afar mikilvægt að foreldrar ungra barna geri ráðstafanir á heimilinu til að koma í veg fyrir slys. Árvekni hefur útbúið gátlista fyrir heimilið til að auðvelda foreldrum að átta sig á því hvaða hlutir það eru á venjulegu heimili sem geta verið hættulegir smábörnum. Á gátlistanum má finna spurningu um öryggi glugga en á þeim ættu að vera öryggislæsingar sem tryggja að þeir opnist ekki meira en 10 cm. Ekki er hægt að treysta á að gluggar í húsum sem byggð eru fyrir 1998 séu með öryggislæsingar sem tryggja einungis 10 cm opnum, því fyrir árið 1998 voru heimilar öryggislæsingar sem gátu opnað glugga að 12 cm. Op á glugga sem er 12 cm er 2 cm of stórt fyrir yngstu börnin því þau geta troðið sér í gegnum það með alvarlegum afleiðingum.
Þeir sem búa í húsum sem byggð voru fyrir 1979 eru væntanlega ekki með neinar öryggislæsingar á gluggum því ekki voru gerðar kröfur um þær á þeim tíma. Þetta breyttist þó árið 1979 vegna dauðaslysa sem urðu á litlum börnum þegar þau féllu út um glugga.
Hægt er að fá öryggislæsingar fyrir glugga sem tryggja að gluggar opnist ekki meira en 10 cm. Það er mjög mikilvægt að setja slíka læsingu á alla glugga, jafnvel þó að ekki séu smábörn á heimilinu því vitað er um að stór börn hafi dottið út um glugga.
Herdís L. Storgaard, framkvæmdastjóri Árvekni.
