3 ára telpa klemmist í lyftuhurð
Framkvæmdastjóri Árvekni fór degi síðar og skoðaði lyftuna með vakthafandi öryggisverði, sem komið hafði barninu til hjálpar. Hann taldi hurðina mjög hættulega og þegar hann var að sýna framkvæmdastjóranum hvernig atvikið hafði átt sér stað klemmdi hann sig á fingrunum. Við nánari skoðun kom í ljós að þarna er um slysagildru að ræða sem lagfæra þarf strax, áður en að fleiri lenda þarna í óhöppum. Atvikið var tilkynnt til Vinnueftirlits ríkisins sem mun skoða lyftuna nánar. Mikilvægt er að aðrar sambærilegar lyftur verði einnig skoðaðar í framhaldi af þessu atviki og þær einnig lagfærðar. Það vakti athygli framkvæmdastjóra Árvekni að lyftan var með skoðunarmiða Vinnueftirlits ríkissins en samt var þessi hætta til staðar. Svo virðist sem við hönnun lyftunnar hafi gleymst að taka tillit til öryggis barna. Börn eru forvitin og sífellt að kanna umhverfið. Þau umgangast hlutina oft á annan hátt en við fullorðna fólkið gerum.
Herdís Storgaard, framkvæmdastjóri Árvekni
