Sími : 5 800 900
Árvekni-slysavarnir barna

Smábarn verður fyrir eitrun vegna plöntu

15.4.2003

Fyrir tæpum mánuði varð 1 árs barn fyrir eitrun eftir að það hafði komist í þyrnikaktus. Talið er að barnið hafi brotið kaktusinn og við það hafi runnið úr honum út hvítur safi. Barnið hefur sett hann í munninn því í munni þess voru brunasár og blöðrur. Læknirinn sem skoðaði barnið eftir óhappið kannaði málið betur og komst að því þyrnikaktus er mjög eitruð planta og er hún talsvert algeng á heimilum hér á landi.  Áhrif eitrunarinnar geta verið krampar sem leitt geta til öndunarörðugleika og jafnvel dauða.  Sem betur fer hafði barnið ekki fengið of mikið af vökvanum upp í sig en litlu mátti muna.

Læknir barnsins hafði samband við Árvekni til að fá upplýsingar um hvaða reglur væru í gildi um merkingar á eitruðum plöntum. Árvekni hefur sett inn á heimasíðu sína lista yfir eitraðar plöntur og er hann í stöðugri endurvinnslu. Af gefnu tilefni viljum við benda foreldrum, ömmum, öfum og öðrum sem sinna börnum á að fara yfir þær plöntur sem eru á heimilinu og í garðinum til að kanna hvort einhverjar þeirra geti verið eitraðar. Mikilvægt er að fjarlægja eitraðar pöntur og setja þær þar sem lítil börn ná ekki til.  Ef eitraðar plöntur eru í garðinum er mikilvægt að gæta barnanna sérstaklega vel og hugsanlega fjarlægja plönturnar.  Framkvæmdastjóri Árvekni kannaði hvort einhverjar reglur væru í glildi hér á landi varðandi merkingar á eitruðum plöntum.  Í ljós kom eftir að hafa talað við nokkrar stofnanir að það er alls ekki ljóst hver á að hafa eftirlit með innflutningi slíkra plantna.  Árvekni telur að gera þurfi innflytjendur, framleiðendur og seljendur ábyrga fyrir að merkja allar plöntur sem eru eitraðar þannig að fólk átti sig á því og velji frekar aðrar plöntur sem ekki geta skaðað börnin á heimilinu.  Árvekni mun fylgja þessu máli eftir og sjá til þess að tekið verði á þessu og mun jafnframt í framtíðinni gefa út frekari upplýsingar um eitraðar plöntur sem dreift verður á heilsugæslustöðar landsins og fleiri staði.

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica