Sími : 5 800 900
Árvekni-slysavarnir barna

Barnagæsla

28.4.2003

Framundan eru sumarfrí í leik- og grunnskólum og standa margir foreldrar frammi fyrir vanda með gæslu fyrir börnin sín. Ekki hafa allir kost á því að taka frí í sinni vinnu á þeim tíma sem börnin eru í fríi og þurfa því margir að ráða einhvern til að gæta barnanna.

Hér á landi hefur það tíðkast til margra ára að ráða ung börn til þess að gæta barna. Við hjá Árvekni viljum benda foreldra á að kynna sér samantekt sem Vinnueftirlitið hefur útbúið um barnagæslu, en þar kemur fram að ekki sé heimilt að ráða börn undir 15 ára aldri til þeirra starfa. Í samantektinni má finna ástæður þess að miðað er við þann aldur.

Hér á heimasíðunni er einnig að finna ýmsar góðar ábendingar fyrir foreldra sem þurfa að ráða til sín barnfóstru og hvaða öryggisatriði þarf að hafa í huga. 

Við hvetjum foreldra til að virða þessar reglur, því þær eiga að tryggja öryggi vinnandi barna og þeirra barna sem þurfa á gæslu að halda.

Herdís Storgaard, framkvæmdastjóri Árvekni

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica