Tveggja ára barni bjargað úr tjörn
Í byggingarreglugerð kemur fram að sækja þurfi um leyfi til byggingarfulltrúa viðkomandi sveitarfélags fyrir því að setja tjörn í garðinn sinn. Mjög mikilvægt er að traust girðing sé í kringum lóðina þannig að tryggt sé að börn komist ekki að tjörninni og fari sér að voða. Þeir sem hafa í hyggju að setja tjörn í garðinn sinn ættu ætíð að hafa öryggi barna í huga.
Foreldrum er bent á að börn geta drukknað á innan við 3 mínútum í aðeins 2-5 cm djúpu vatni. Það getur gerst mjög skyndilega og hljóðlega. Það heyrist ekkert kall á hjálp eða busl í vatninu. Sérstaklega eru börn undir fjögurra ára í hættu. Ástæðan er sú að barnið hefur ekki náð þeim þroska að bera fyrir sig hendurnar við fall heldur dettur það beint á höfuðið. Við það missir barnið áttir, ásamt því að vera seint í hreyfingum sem getur orsakað drukknun á innan við 2-3 mínútum ef enginn fullorðin er til staðar til að bjarga þeim.
Við hvetjum alla þá sem eru með gosbrunna eða tjarnir í garðinum að kynna sér hvaða öryggiskröfur eru í gildandi varðandi frágang á þeim og ef öryggisatriðunum er ábótavant að laga það hið fyrsta.
Herdís L. Storgaard, framkvæmdastjóri Árvekni
