Sími : 5 800 900
Árvekni-slysavarnir barna

14 ára drengur brennist í setlaug

29.4.2003

14 ára drengur brenndist illa á læri um páskana, þar sem hann var með fjölskyldu sinni í sumarbústað á Suðurlandi.

Slysið varð með þeim hætti að bilun var í blöndunartækjum í setlaug og var þá gripið til þess ráðs að leiða slöngur með heitu og köldu vatni í hana til þess að fylla hana. Drengurinn fór út í laugina á meðan vatnið var að renna í hana og ekki vildi betur til en svo að slangan með heita vatninu færðist til með þeim afleiðingum að sjóðandi heitt vatn skvettist á annað læri hans. Hann hlaut 2° brunasár.

Að gefnu tilefni vill Árvekni benda öllum þeim sem eru með setlaugar að huga vel að öllum öryggisatriðum.  Eftirfarandi atriði ber að hafa í huga:

1. Öryggisvari þarf að vera á rennsli vatnsins.  Hann er stilltur á æskilegt hitastig og mælir hitastig vatnsins á nokkrum stöðum í setlauginni.  Minnki rennsli á kalda vatninu að einhverjum orsökum nema mælar það og heita vatnið hættir að renna.  Þannig er tryggt að æskilegt hitastig haldist á vatninu.

2. Lok þarf að vera á setlaugum þegar þær eru ekki í notkun.  Nokkur börn hafa verið hætt komin eftir að hafa dottið í setlaugar sem voru loklausar og fullar af vatni.  Laufblöð geta lokað niðurfallinu og þannig skapast hætta á að regnvatn safnist fyrir.  

3. Girðing þarf að vera í kringum garða þar sem setlaugar eru og á þeim þurfa að vera sjálflokandi hlið. 

4. Mikilvægt er að fella ekki setlaugina í sólpallinn heldur að hafa a.m.k 50-60 cm brún upp í setlaugina vegna smábarna.

5. Huga þarf að því að niðurföll í setlauginni séu öryggisniðurföll þannig að hár barna festist ekki ef börn eru að kafa og hafa fjarlægt tappann.

Að lokum viljum við benda foreldrum á að skilja börn aldrei eftir eftirlitslaus í setlaugum, ekki eitt augnablik en slík vangá getur reynst dýrkeypt.

Hér á heimasíðunni má finna ítarlega umfjöllun um setlaugar og drukknun.

Herdís L. Storgaard, framkvæmdastjóri Árvekni 

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica