7 ára drengur hlýtur 22,5% brunasár
Slysið varð með þeim hætti að drengurinn rann til á gólfinu og datt á opna hurð bakaraofnsins en við það féll eldavélin yfir hann. Verið var að sjóða kjöt í potti á eldavélinni og fékk hann pottinn yfir sig líka. Þess ber að geta að eldavélin var ekki fest við vegginn. Drengurinn hlaut 22.5% bruna á líkamann og liggur enn á Barnaspítala Hringsins. Hann mun á næstu vikum gangast undir frekari aðgerðir.
Að gefnu tilefni viljum við hjá Árvekni hvetja foreldra til að kanna hvort eldavélin sé fest við vegginn en margir halda að eldavélar geti ekki sporðreist vegna þess hversu þungar þær eru. Við viljum einnig benda foreldrum á að setja öryggislæsingu á bakaraofninn ef hana vantar.
Þetta er ekki fyrsta slysið af þessum toga sem barn verður fyrir og því ástæða til að vara við þessari hættu.Herdís Storgaard, framkvæmdastjóri Árvekni
