Sími : 5 800 900
Árvekni-slysavarnir barna

Stúlka festi hettu í glugga í skólastofu

20.5.2003

Þann 16. maí sl. greindi DV frá því að litlu hefði mátt muna að illa færi þegar stúlka sem var að klifra í glugga í skólastofu í Birkimelsskóla á Barðaströnd festi hettu í krækju í glugganum. Atvikið varð með þeim hætti að stúlkan var að stökkva niður úr glugga og festist hettan í krækju og hertist að hálsi hennar.

Að gefnu tilefni viljum við hjá Árvekni benda foreldrum á að mikilvægt er að fjarlægja reimar úr fatnaði barna, sérstaklega hettum. Æskilegt er að setja í staðinn teygju sem gerir það að verkum að op hettunnar rykkist saman og minnkar þar með hættuna á að hettan krækist í eitthvað. Á síðustu 10 árum hafa orðið a.m.k. þrjú slys og voru tvö þeirra mun alvarlegi en það sem getið er um í DV.  Eitt barnið fór í öndunarstopp og var það fyrir snör handtök og kunnáttu leikskólakennarans sem varð vitni að slysinu að ekki fór verr.

Nokkur alvarleg slys hafa orðið þegar reimar í hettum hafa setið fastar en flest þeirra slysa hafa átt sér stað á leiksvæðum.  Oft hefur litlu mátt muna að ekki fór ver.

Á heimasíðunni má finna frekari upplýsingar um hættur við reimar í fatnaði barna og hettur sem við hvetjum alla til að kynna sér nánar.

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica