29 leikskólabörn í bráðri lífshættu. Sátu í framsæti bíla með öryggispúða fyrir framan sætið
Fréttatilkynning maí 2003 frá Árvekni, Umferðarstofu og Slysavarnafélaginu Landsbjörgu
Leikskólabörn þurfa sérstakan öryggisbúnað í bíl.
Alltof margir foreldrar gera sér ekki grein fyrir því að börn á leikskólaaldri þurfa sérstakan öryggisbúnað í bíl þ.e. barnabílstól. Það er ótrúlegt, en satt að 243 börn á aldrinum 1-6 ára voru einungis með bílbelti þegar könnunin var gerð, en bílbelti eru hönnuð fyrir einstaklinga sem eru að minnsta kosti 140 sm. á hæð og 35-40 kg, en það er almennt ekki fyrr en komið er á miðstig grunnskólans. Öryggisbelti verja lítil börn ekki nægilega í árekstri og er hættan á því að barn kastist úr bílbeltinu eða slasist alvarlega af völdum bílbeltis veruleg. Því er ekki forsvaranlegt að börn á leikskólaaldri noti bílbelti nema með réttum aukabúnaði, bílpúða eða bílpúða með baki.
Í könnuninni kom í ljós að 29 lítil börn sátu í framsæti andspænis uppblásanlegum öryggispúða. Við árekstur framan á bíl á aðeins 30 km. hraða þenst slíkur öryggispúði út af miklu afli þannig að lítið barn sem situr fyrir framan hann getur stórslasast eða látið lífið af völdum hans. Þannig má segja að um alvarlega vanrækslu sé að ræða í þessum tilvikum þar sem börnin voru í bráðri lífshættu.
Miklar framfarir hafa þó orðið á notkun öryggisbúnaðar barna í bílum frá því farið var að kanna með reglulegum hætti árið 1996. Í ár reyndust 82% barna vera með réttan öryggisbúnað og 6% laus miðað við að 72% barna var með réttan öryggisbúnað 1996 og 28% barna laus.
Á aðeins tíu stöðum á landinu var ekkert barn laust í bíl.
Í ljós kom að talsvert var um að börn sætu laus við hliðina á góðum öryggisbúnaði og að foreldrar voru sjálfir spenntir, eða 31 foreldri, en börnin laus í aftursætinu. Mikið var um að búnaður sem notaður var hæfði ekki þyngd barnanna og nokkuð um að hann væri ekki rétt festur. Einnig kom í ljós í nokkrum tilvikum að notaður væri mjög lélegur búnaður sem uppfyllir alls ekki lágmarkskröfur um gæði.
Leikskólakennaranemar í Kennaraháskóla Íslands, félagsmenn eininga Slysavarnafélagsins Landsbjargar víða á landinu, starfsfólk Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Árvekni og Umferðarstofu könnuðu ástandið í aprílmánuði s.l.
Margrét Sæmundsdottir 20. maí 2003
