Sími : 5 800 900
Árvekni-slysavarnir barna

Hvaða reglur gilda hér á landi um framleiðslu, innflutning og eftirlit leikvallatækja og undirlag þeirra

10.12.2003

Þann 10. janúar 2003 tók gildi reglugerð nr. 942/2002 um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim. Markmið reglugerðarinnar er að stuðla að öryggi barna og annarra með því að leikvallatæki og leiksvæði sé hönnuð, frágengin og þeim viðhaldið á öruggan hátt. 

Afar mikilvægt er að íslenskir framleiðendur, innflytjendur og rekstraraðilar leikvallatækja og undirlags þeirra kynni sér núgildandi reglur vel.


Gildistaka:
Reglugerðin veitir rekstraraðilum leikvallatækja frest til 31. desember 2006 til að endurgera þá leikvelli og þau leikvallatæki sem voru í notkun við gildistöku reglugerðarinnra.  Heilbrigðisnefnd er þó heimilt að láta fjarlægja hættuleg leikvallatæki ef ástæða þykir til.  Ennfremur má veita lengri frest til endurgerðar leikvalla en þó ekki lengur en til ársins 2010.  Rekstraraðilar leiksvæða skulu leggja fram tímasetta áætlun um endurgerð til umsagnar heilbrigðisnefndar fyrir 1. janúar 2005.  Rekstraraðilar eru þeir sem eru ábyrgir fyrir leikvallatækjum og leiksvæðum. Sveitarfélög reka flest leiksvæði.

Hvað varðar ný leikvallatæki á markaði þá hafa ákvæði reglugerðarinnar og kröfur til leikvallatækja og undirlags þeirra nú þegar tekið gildi.  Þetta á bæði við um ný leikvallatæki og undirlag þeirra sem framleitt er hér á landi eða flutt inn til landsins.

 Eftirlit:

Eftirlit með nýjum leikvallatækjum á markaði er í höndum  Löggildingarstofu en heilbrigðisnefndir hafa eftirlit með leikvallatækjum og leiksvæðum í notkun.   

Kröfur til nýrra leikvallatækja á markaði:

Þeir sem flytja inn framleiða, markaðssetja, leigja eða dreifa leikvallatækjum hér á landi eða ætla að flytja þau út til annarra ríkja  á EES svæðinu skulu geta sýnt fram á að viðkomandi tæki uppfylli kröfur sem fram koma í stöðlum um leikvallatæki og undirlag þeirra,  ÍST EN 1176 ásamt ÍST EN 1177.  Þetta skal a.m.k. gert með yfirlýsingu framleiðenda, ásamt rökstuddri umsögn þar sem fram skulu koma tæknilegar upplýsingar um einstök leikvallartæki unnin af aðila með sérþekkingu á framangreindum stöðlum og með hliðsjón af ÍST EN 45004.

Þetta þýðir að: 

  1. Leikvallatækjum eða undirlagi skal fylgja yfirlýsing framleiðenda um samræmi við staðla.

  2. Með yfirlýsingu framleiðenda skal fylgja rökstudd umsögn sem styður yfirlýsingu framleiðenda.

  3. Tæknilegar upplýsingar um einstök leikvallatæki unnar af aðila með sérþekkingu á umræddum stöðlum og með hliðsjón af ÍST EN 45004.

  

Alla staðla um leikvallatæki og undirlag leikvallatækja er hægt að fá keypta hjá Staðlaráði Íslands www.stadlar.is

  

Nánari upplýsingar veita:  

Ný leikvallatæki á markað:

Markaðsgæsludeild Löggildingarstofu

Fjóla Guðjónsdóttir

Sími 510 1100

e-mail: fjola@ls.is

 

Leikvallatæki og leiksvæði í notkun:

Umhverfisstofnun

Brynja Jóhannsdóttir

Sími: 591 2000

e-mail: brynja@ust.is

 

 

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica