Bæklingurinn: Sælgæti og smáhlutir geta valdið köfnun
ar sælgæti og smáhlutir eru annars vegar, hefur nú verið endurútgefinn. Bæklingurinn hefur verið ófáanlegur um nokkurt skeið, en töluvert hefur verið spurt um hann.Árlega eru mörg börn hér á landi hætt komin vega aðskotahlutar í hálsi. Flest þessara barna eru undir 8 ára aldri. Markmiðið með bæklingnum er að vegkja athygli á því að sælgæti og smáhlutir geta verið varasamir fyrir börn og benda á rétt viðbrögð vegna aðskotahlutar í hálsi. Skyndihjálparviðbrögð með texta og skýringmyndum eru sýnd bæði vegna ungbarna og barna sem eru eldri en eins árs.
Útgáfa bæklingsins er samvinnuverkefni Lýðheilsustöðvar, Neytendastofu, Rauða kross Íslands og Umhverfisstofnunar.
Heilsugæslustöðvum og öðrum sem áhuga hafa stendur til boða að panta bæklinginn hjá Lýðheilsustöð.
Sjá nánar um slysahættur af ofangreindum orsökum og um eldri útgáfu bæklingsins.