Sími : 5 800 900
Árvekni-slysavarnir barna

Leynast gamlir skoteldar á þínu heimili?

12.1.2006

Í pistli Herdísar Storgaard, í Blaðinu þriðjudaginn 10. janúar, var fólk varað við því að geyma skotelda inni á heimilinu. Sá tími sem leyfður er til að skjóta upp skoteldum er nú löngu liðinn og því er ekki hægt að eyða birgðum af skoteldum á þann hátt. Mikil eldhætta getur stafað af því að geyma skotelda inni á heimilinu og því nauðsynlegt að losa sig við þá – en það er hægt að gera á móttökustöðvum Sorpu.

Skoteldar eru mjög eldfimir og þarf ekki mikið magn til alvarlegur bruni geti hlotist af þeirra völdum - það hefur reynsla fyrri ára sýnt okkur. Skoteldar eru einnig mjög viðkvæmir fyrir geymslu. Þeir þola illa sveiflur í hitasigi, sérstaklega eru þeir viðkvæmir fyrir miklum hita og raka. Skoteldar geta verið ónýtir þó þeir líti út fyrir að vera heilir, þannig að ekki er alltaf hægt að nota útlitið sem vísbendingu um öryggi þeirra. Í kjölfar pistilsins í Blaðinu hafa nokkrir foreldrar haft samband til að kanna hvað eigi að gera við gamla skotelda. Haft var samband við Sorpu þar sem fengust þær upplýsingar að móttökustöðvar þeirra taki á móti skoteldum án endurgjalds. Mikilvægt er að afhenda starfsmönnum Sorpu skoteldana og það má alls ekki henda skoteldum í ruslatunnur. Hægt er að finna frekari leiðbeiningar á heimasíðu Sorpu www.sorpa.is

Herdís L. Storgaard,
verkefnastjóri barnaslysavarna Árvekni, Lýðheilsustöð



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica