Árlega slasast um 100 börn í innkaupakerrum
Herdís Storgaard, verkefnisstjóri Árvekni hjá Lýðheilsustöð, Sigrún A. Þorsteinsdóttir, sviðsstjóri slysavarna hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu, og Hulda Brá Magnadóttir sérfræðingur í heila- og taugaskurðlækningum, kynntu átakið og sögðu frá slysum sem orðið hafa þegar börn detta úr innkaupakörfum.
Á kynningunni kom fram að börn sem slasast vegna falls úr innkaupakerru, gjarnan niður á steypt gólf, meiðast oft mjög illa. Oftar en ekki detta þau á höfuðið, þar sem afleiðingin er alvarlegur höfuðáverki sem jafnvel hefur áhrif á líf barnsins það sem eftir er. En sem betur fer er aðeins um kúlu eða skrámur að ræða í öðrum tilefellum. En með því foreldrar séu mjög vel á verði og noti körfurnar á réttan hátt fyrir börnin má koma í veg fyrir þessi slys. Einnig er mikilvægt að foreldrum bjóðist kerrur með öryggisbeltum í öllum verslunum en fram kom á fundinum að ennþá eru ekki mjög margar verslanir með slíkar
kerrur - en vonandi hefur átakið þau áhrif að þar verði bætt úr. Verslanir eiga að geta keypt slík belti hjá þeim aðilum sem selja innkaupakerrur.
Veggspjöld með skilaboðunum hanga nú vonandi á veggjum verslana um allt land og upplýsinabæklingur fyrir foreldra liggur þar frammi.
Í tengslum við átakið var verslunum sendar neðangreindar upplýsingar um það hvernig innkaupakerrur eiga að vera til að þær séu sem öruggastar fyrir börnin - svo innkaupaleiðangur foreldranna breytist ekki í martröð.
Svona eru innkaupakerrurnar öruggari:
Enginn vafi er á því að örugg og rétt notkun á innkaupakerrum getur bæði komið í veg fyrir slys og fækkað þeim. Slysatölur sýna að sá hópur sem slasast hvað oftast í tengslum við innkaupakerrur eru börn. Tölurnar gefa ekki til kynna hvort um er að ræða fall úr kerrunum sökum aðgæsluleysis foreldra eða hvort innkaupakerrurnar ultu þar sem þær voru lélegar eða t.d. dekk og undirvagn þeirra slitin eða biluð. Ef fækka á slysum í tengslum við innkaupakerrur er nauðsynlegt að auka ábyrgð og aðgæslu foreldra og að verslanir skipuleggi reglubundið eftirlit og viðhald með kerrunum. Einnig ber að huga að því að kaupa eingöngu innkaupakerrur sem uppfylla kröfur samhæfður evrópsks staðalls ÍST EN 1929 (Basket trolleys: Requirements and tests for basket trolleys with or without a child carrying facility). Staðlar eru ekki lög og því ber framleiðendum innkaupakerra ekki að hanna og framleiða kerrur sínar eftir staðlinum en hann er hins vegar það viðmið sem framleiðendur og staðlasamtök Evrópu, CEN, hafa samþykkt að gildi sem besti kostur. Staðallinn er í nokkrum hlutum sem hver um sig tekur á ólíkum þáttum við innkaupakerrur t.d. hönnun barnastóla og að slíkar kerrur skuli vera með hemlabúnaði, hvaða upplýsingar skulu vera á innkaupakerrum t.d. til foreldra um rétta og örugga notkun sem og prófunarkröfur er lúta að stöðugleika. Í staðlinum er einnig skilgreint hvaða upplýsingar skulu vera sýnilegar s.s. hámarksþyngd barna er nota barnastólana og hvernig viðhaldi skuli háttað til að tryggja öryggi vörunnar.
Við val og kaup á innkaupakerrum er því mikilvægt að skoða hvort kerrurnar uppfylli ákvæði staðla um innkaupakerrur og hvort framleiðandi geti látið í té upplýsingar sem þess efnis að þær hafi verið prófaðar með hliðsjón af þeim. Jafnframt eiga framaleiðendur að láta kaupendum í té upplýsingar um viðhald og eftirlit með innkaupakerrunum. Engar almennar reglur eru til um líftíma innkaupakerra, þar vegur þyngst notkun þeirra og viðhald verslunar. Það er aldrei of oft tíundað að slys á börnum í tengslum við notkun innkaupakerra er samspil notkunar foreldra og viðhalds verslana á kerrunum.
Lýðheilsustöð, Slysavarnafélagið Landsbjörg og Neytendastofa hvetja verslunareigendur til að koma sér upp innra skipulagi sem tryggir að reglulega er farið yfir ástand innkaupakerrana þar sem m.a. yrði horft til upplýsinga frá framleiðenda auk eftirfarandi:
§ Er einn aðili ábyrgur fyrir öllum kerrum verslunarinnar?
§ Eru skemmdar eða laskaðar kerrur teknar til hliðar í lok dags?
§ Er farið yfir öll barnasæti reglulega s.s. festingar þeirra við kerru?
§ Eru öryggisfestingar barnasæta og belti sætisólar á innkaupakerrum yfirfarnar reglulega?
§ Er reglulega skipt um belti eða sætisólar?
§ Er reglulega farið yfir hjól innkaupakerra, þau hreinsuð?
§ Eru merkingar um hámarksþyngd barna á kerrunum, ungabarnastóll: 9 kg og barnasæti: 15 kg.
§ Eru merkingar um að börn sem sitji í sæti kerrunar skuli nota skuli belti
§ Eru merkingar um að ef sérstök barnasæti eru á kerru þá skuli nota hemlabúnað.
§ Eru merkingar þess efnis að foreldrar skuli ávallt hafa eftirlit með börnum sem eru í innkaupakerrunni”.
§ Er nánasta umhverfi verslunarinnar greiðfært fyrir kerrur, geta holur í bílastæði, háir eða lausir kantar orsakað eða haft áhrif á stöðugleika kerru?
frettatilkynning_innkaupakerrur






