Sími : 5 800 900
Árvekni-slysavarnir barna

Börn eru að festa skófatnað í rúllustigum

10.11.2005

Lýðheilsustöð hafa verið að berast tilkynningar um óhöpp í rúllustigum þar sem börn hafa fest stígvél eða gúmmískó í stigunum. Skófatnaðurinn eyðilagðist en börnin sluppu með skrekkinn í þessum tilvikum. Af gefnu tilefni eru foreldrar beðnir að hafa gætur á börnum sínum í rúllustigum og leyfa þeim alls ekki að leika sér þar.

Smellið á myndina til að stækkaAtvikin sem um ræðir áttu sér stað nú í haust, annars vegar í verslunarmiðstöðinni Smáralind í Kópavogi og hins vegar í Húsgagnahöllinni. Í Smáralind var drengur á leið upp stigann og þegar hann ætlaði að stíga af stiganum klipptist framan af öðru stígvéli hans. Það vildi honum til happs að stígvélin voru vel við vöxt þannig að tærnar sluppu. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem svona gerist og vitað er að nokkur börn hafi skaddast á tám við svipaðar aðstæður.

Í framhaldi af frétt, sem birtist um atvikið í dagblöðum, hafði móðir samband við Lýðheilsustöð og tilkynni svipað atvik sem átti sér stað í byrjun október í verslunarhúsnæði Húsgagnahallarinnar. Þar mátti litlu muna þegar að fjögra og hálfs árs sonur hennar festi gúmmískóinn í rúllustiganum. Sem betur fer skaddaðist barnið ekki en skórinn flettist í sundur.Smellið á myndina til að stækka

Ekki samræmdar aðvörunarmerkingar

Við frekari skoðun kemur í ljós að ekki eru samræmdar aðvörunarmerkingar í og við rúllustiga og ekki eru gerðar sömu kröfur um merkingar í stigunum sjálfum. Þetta er ákaflega bagalegt og því mjög erfitt að ráðleggja fólki hvernig það eigi að nota stigana á öruggan hátt.

Samkvæmt gildandi íslenskum staðli um rúllustiga og færibönd, ætlum til fólksflutninga, þá á að vera stöðvunarbúnaður í stiganum sem stoppar stigann þegar eitthvað fer á milli þrepanna. Það gerðist í öðru tilfellinu en ekki fyrr en klippst hafði framan af stígvélinu - sem hefði allt eins getað verið tær drengsins.

Passið börnin í stigunum

Foreldrar eru hvattir til að gæta barna sinna mjög vel í og við rúllustiga og alls ekki að leyfa þeim að leika sér í þeim. Í rúllustiganum er mikilvægt að halda sér í handriðið og standa í miðju þrepi. Í sumum rúllustigum eru gular línur fremst og til hliðar á þrepinu en þær gefa það til kynna að þar eigi ekki að standa. Í öðrum rúllustigum eru engar slíkar merkingar en þeir eru með sópkant til hliðar við þrepin sem hindrar fólk í að standa of nálægt hliðum þrepsins. Lausar reimar í skóm geta setið fastar í raufum í þrepunum og því er mikilvægt að þær séu vel hnýttar þegar farið er í stigann. Á meðfylgjandi myndum má sjá hversu illa stigarnir fóru með skótau barnanna.

 

Herdís L. Storgaard

Verkefnastjóri banaslysavarna

herdis@lydheilsustod.is

 

 

 



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica