Kiwanis veitir Herdísi Storgaard Hixon orðuna
Hixon orðuna hefur Kiwanis umdæmið Ísland - Færeyjar veitt fólki innan Kiwanishreyfingarinnar, fyrir vel unnin störf í þágu hreyfingarinnar, en einnig einstaklingum utan hreyfingarinnar. Þeir einstaklingar eru: Herdís Hinriksdóttir, ekkja Einars Jónssonar stofnanda Kiwanishreyfingarinnar á Íslandi, Vigdís Finnbogadóttir, þáverandi forseti Íslands, Jón Baldvin Hannibalsson, þáverandi utanríkisráðherra, og nú til Herdísar Storgaard.
Þegar einstaklingi er veitt Hixson orða er gefið í hans nafni 1000 $ og nafn hans fer á töflu í höfuðstöðvum Kiwanis í Indianapolis. Þessir 1000 Bandaríkjadalir renna í styrktarsjóð Kiwanis International Foundation en sjóðurinn úthlutar styrkjum til verkefna í þágu barna. Sjóðurinn veitti tveimur milljónum dala til barna sem misstu foreldra sína í árásunum í New York 11. september og einnig styrkti sjóðurinn, í samvinnu við Kiwanisklúbba í Asíu, uppbyggingu á 100 barnaheimilum og skólum eftir flóðin í Asíu.
Kjörorð Kiwanis International eru: HJÁLPUM BÖRNUM HEIMS.
