Sími : 5 800 900
Árvekni-slysavarnir barna

Fimm mánaða barn hætt komið í baðkari

11.8.2005

Fyrir skömmu nærdrukknaði rúmlega fimm mánaða gamalt barn.

Skilgreining á nærdrukknun er: Barnið fer í öndunarstopp eða öndunar- og hjartastopp og þarfnast endurlífgunar. Slíkt ástand getur verið lífshættulegt. Sé barninu ekki komið til hjálpar mjög fljótt er hætta á súrefnisskorti sem orsakað getur varanlegan heilaskaða.

Slysið átti sér stað þegar verið var að baða barnið. Barnið var í baðsæti í baðkarinu en litið var af því augnablik. Baðsætið, sem fest er við baðkarið með sogkoppum, losnaði með þeim afleiðingum að barninu hvolfdi. Barninu var strax komið til hjálpar og flutt á sjúkrahús og því virðist ekki hafa orðið meint af.

Að gefnu tilefni er eftirfarandi komið á framfæri:

* Smábörn geta drukknað í vatni sem er 2-5 sm djúpt. Það getur gerst hljóðlega og á innan við 3 mínútum.

* Baðsæti eru ætluð börnum 6 mánaða og eldri. Í leiðbeiningum er þess getið hversu lengi barnið má nota búnaðinn (hámarksaldur).

* Baðsæti eru ekki öryggisbúnaður heldur eru þau til að létta þeim vinnuna sem er að baða barnið.

* Barn í baðsæti þarf ekki að hreyfa sig mikið til að sogkopparnir, sem halda sætinu föstu við baðkarið, geti losnað - með fyrrnefndum afleiðinum.

* Aldrei má skilja barn eftir eitt í baðsæti – ekki svo mikið sem eitt augnablik

 

Mörg slys í baðsætum í öðrum löndum

Talsvert er um að börn hafi drukknað í baðsætum í öðrum löndum en þetta er fyrsta alvarlega slysið hér á landi. Foreldrar og forráðamenn barna eru beðnir að hafa þetta í huga og að fara að öllu með gát þegar að þessi búnaður en notaður.

 

Á árinu 2005 hafa 6 börn, tveggja ára og yngri, verið næstum drukknað hér á landi og er þetta skelfileg þróun.

 

Nánari upplýsingar veitir

Herdís L. Storgaard

 herdis@lydheilsustod.is

gsm 8400906, sími 5800906

verkefnastjóri barnaslysavarna

Árvekni - Lýðheilsustöð

 



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica