Slasaðist þegar hann féll af trampólíni
Að sögn lögreglunnar í Keflavík var pilturinn fluttur með sjúkrabíl á Landspítala Háskólasjúkrahús. Lögreglu bárust upplýsingar um að pilturinn hefði komist til meðvitundar en yrði hafður undir eftirliti á Landspítalanum fram á næsta dag.
Lögreglan vill vegna þessa árétta við foreldra og forráðamenn barna og ungmenna að huga að öryggisþáttum þessara leiktækja. Eins sé það ávísun á óhöpp eða slys ef margir eru að hoppa á þeim í einu en í leiðbeiningum, sem fylgi flestum þessara leiktækja, komi fram að einungis einn skuli vera við leik í einu.
Frétt af www.mbl.is - 21.7.2005
