Sími : 5 800 900
Árvekni-slysavarnir barna

Enn og aftur um fótboltamörk

5.7.2005

Í byrjun sumars slasaðist unglingsstúlka á höfði þegar það féll á hana fótboltamark. Slysið gerðist með þeim hætti að stúlkan var að klifra í markinu þegar það féll um koll of fékk hún marksúluna í höfuðið.

Á 17 árum hafa rúmlega 40 börn slasast alvarlega og sum þeirra hlotið varanlegan skaða. Yfir 100 börn hafa verið lögð inn á sjúkrahús til frekari rannsókna vegna þess að mark hefur dottið á þau.

Slysin verða flest með þeim hætti að börnin eru að klifra í markinu og það dettur um koll eða börnin eru að hanga í þeim að framan og það dettur yfir þau.

Það er alveg skýrt í reglugerð að fótboltamörk skulu vera fest niður en því miður er mikill misbrestur á þessu, sérstaklega þegar kemur að knattspyrnufélögunum.

Slys af völdum marka eru með alvarlegri slysum sem börn verða fyrir. Börn hafa hlotið höfuðkúpubrot og blæðingu inn á heila. Algengustu áverkarnir eru að líffæri í kviðarholi skaddist og má þar nefna að miltið fer í sundur, áverka á nýru og skeifugörn.

Þeir sem eiga og setja upp mörk ber samkvæmt reglugerð að sjá til þess að mörkin séu alltaf föst! Það þarf því að hafa gott eftirlit með mörkunum þannig að ekki sé verið að losa þau í tíma og ótíma eins og virðist vera algengt. Flest mörk sem verið er að nota á opnum svæðum víðsvegar um landið eru mjög hættuleg mörk sökum þess hvernig þau eru hönnuð. Þau eru úr þungum málmi og eru mjög grunn. Lögleg mörk eru mun dýpri og þarf því meira til að þau falli um koll en engu síður þarf að festa þau líka niður. Fótbrot hafa orðið þegar að þjálfarar eru að láta smákroppa bera mörkin á milli en slíkt á ekki að eiga sér stað. Í dag er þetta ekki lengur tæknilegt vandamál að festa mörkin niður. Fyrirtæki sem framleiða mörk framleiða einnig festingar sem henta við mismunandi aðstæður. Vandamálið er að festingarnar eru ekki keyptar með.

Ég hvet foreldra til að kann hvernig ástandið er hjá fótboltafélögunum áður en þeir senda börnin sín þangað á æfingu og að þeir geri kröfur um það. Eins ef að fólk sér laus mörk á víðavangi að láta Heilbrigðiseftirlitið vita.

Hægt er að finna frekari upplýsingar á heimasíðu Árvekni, Lýðheilsustöð um fótboltamörk www.lydheilsustod.is

Herdís L. Storgaard
Verkefnastjóri barnaslysavarna
Árvekni, Lýðheilsustöð
herdis@lydheilsustod.is



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica