Sími : 5 800 900
Árvekni-slysavarnir barna

Allir 7 ára nemendur fá reiðhjólahjálma að gjöf

19.5.2005

Í maímánuði 2005 gengur Kiwanishreyfingin sameinuð að því að afhenda öllum skólabörnum í 1. bekk í grunnskólum landsins reiðhjólahjálma – alls um 4.200 hjálma.

Lýðheilsustöð leggur verkefninu lið með því að Herdís Storgaard veitir faglega ráðgjöf varðandi hjálmana og notkun þeirra enda mun þessi gjöf væntanlega verða til þess að öll börn á þessum aldri eru öruggari í umferðinni en ella.
Ljóst er að um mjög verðmæta gjöf að ræða, t.a.m. er kostnaður við verkefnið rúmar 17 milljónir króna. Það er Eimskip sem styður Kiwanishreyfinguna svo hún geti tekist á við þetta mikilvæga verkefni. Kiwanishreyfingunni er það mjög mikilvægt að fyrirtæki í landinu sýni verkefni sem þessu áhuga því Þannig fær hreyfingin tækifærið til að sýna í verki hugsjónir og kjörorð Alþjóðahreyfingarinnar: „Þjónusta í þágu barna“.

Sá háttur verður hafður á að Kiwanisfélagar fara í alla skólana og afhenda börnunum hjálma og ræða við þau um umferðaröryggi og notkun hjálmanna. Að auki fá þau fræðsluefni um rétta stillingu og notkun hjálma til að taka með sér heim. Nemendur í 1. bekk í Austurbæjarskóla verða fyrstu börnin sem fá afhenta reiðhjólahjálma í ár, fimmtudaginn 19. maí.

Reiðhjólahjálmar

Flestum börnum finnst eitt það skemmtilegasta sem þau gera að vera úti að hjóla. Hjólið er tekið fram um leið og vorar og hjólað af krafti langt fram á haust. En því miður fylgir þessum ánægjustundum barnanna oft slys og helsta ástæðan er að þau detta af hjólinu. Áverkarnir eru margvíslegir en mjög oft fær barnið högg á höfuðið við fallið. Þar er það reiðhjólahjálmurinn sem getur komið í veg fyrir að slysið verði alvarlegt – og til að vernda unga fólkið okkar voru sett lög sem skylda hjólreiðafólkið til að vera með hjálm. Hægt er að nefna ótal dæmi sem sanna að barn hafi sloppið með skrámur, eftir að ekið var á það á hjólinu, í stað þess að slasast alvarlega af því að það var með hjálm. Hjálmur bjargar!

Mikilvægt er að nota hjálminn rétt

Til að hjálmurinn hlífi barninu sem best þarf hann að vera rétt stilltur.

Hér eru leiðbeiningar um það hvernig stilla á hjálminn rétt:

 

Hjálmur situr rétt-smella til að stækka

Hjálmur á hlið-smella á mynd til að stækka

Hjálmur prófaður-smellið á myndina til að stækka

Mynd 1

Þessi mynd sýnir hvernig hjálmurinn ver enni barnsins vel.
Mikilvægt er að hjálmurinn sé settur beint niður á höfuð barnsins.

 

Mynd 2

Á þessari mynd sést hvernig

aftara bandið mætir fremra bandinu.
Takið eftir staðsetningu spennunnar, sem tengir böndin saman, en hún þarf að vera fyrir neðan kjálkaliðinn.
Bandið sem fer undir hökuna á að falla það þétt að henni að einungis 1-2 fingur komist þar á milli.
Aftan á hjálminum er skrúfa en hún er til að herða bandið, sem er inni í hjálminum, að höfðinu þannig að hjálmurinn sé vel skorðaður.

 

Mynd 3

Að stillingu lokinni er athugað hvort hjálmurinn sitji sem best á höfði barnsins með því að taka um hann, eins og sýnt er á myndinni.
Prófað er að hreyfa hjálminn fram og aftur á höfði barnsins. Hann situr rétt þegar hann færist einungs um nokkra millimetra.

 

 

Frekari upplýsingar um öryggi barna á reiðhjólum og um hjálma eru hér. 

 

 



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica