Lítið barn verður fyrir alvarlegu eitrunarslysi
Við viljum hvetja foreldra og forráðamenn barna, ekki síst afa og ömmur, að læsa öll lyf inni í skáp. Hægt er að fá öryggislæsingar (barnalæsingar) á skápa en þær eru á engan hátt fullnægjandi vörn gegn því að barnið nái í lyfin. Þessar öryggislæsingar eru þannig gerðar að 30% allra smábarna geta opnað þær. Það má því líta á þær sem seinkun frekar en vörn gegn því að barnið geti komist í lyfin. Best er að vera með lyfjaskáp með lykli þannig að barnið komist alls ekki í skápinn.
Ekki er úr vegi að minna fólk á öll hreinsiefnin sem oft liggja á glámbekk og ber þar sérstaklega að vara við þvottaefni fyrir uppþvottavélar en þau eru gífurlega skaðleg. Valda þau ekki bara eitrunum heldur geta þau brennt innyfli barna varanlega.
Það ber einnig að hafa það í huga við lyfjagjafir barna að nota ekki “nammi” eða sælgæti þegar að verið er lokka lyfin ofan í börnin því þau gætu misskilið það og farið að sækjast í hættuleg lyf.
Herdís Stoorgard.
Árvekni - Slysavarnir barna.
