Barnabílstólar passa ekki í hvaða bíl sem er
- Í bílum sem ætlaðir eru á Bandaríkjamarkað eru bílbelti skv. þarlendum prófunarreglur FMVSS. Bandarískir barnabílstólar eru framleiddir með þessi bílbelti í huga.
- Í bílum sem ætlaðir eru á Evrópumarkað (líka þeir sem framleiddir eru í Bandaríkjunum) eru bílbelti skv. ECE r.44 03 evrópskum prófunarreglum. Þessi bílbelti passa til að festa evrópska barnabílstóla.
- EKKI er hægt að festa bandaríska barnabílstóla, skv. ráðleggingum framleiðenda, í bíl með evrópskum bílbeltum. Erfitt getur reynst að festa evrópska barnabílstóla í bandaríska bíla og eru mörg dæmi um það hér á landi.
- Öruggast er að vera með evrópska barnabílstóla í evrópskum bílum og bandaríska í þeim bandarísku.
Prófið barnabílstólinn í bílinn áður en þið kaupið hann.
Sem dæmi má nefna að hér á landi eru til sænsku ungbarnabílstólarnir Akta Graco, sem eru viðurkenndir og merktir samkvæmt ECE r.44 03.
Í Bandaríkjunum er framleiddur svipaður stóll sem heitir Graco en hann er prófaður eftir FMVSS. Báðum stólunum fylgir pallur sem belti bílsins eru fest við. Fólk sem keypt hafa Graco ungbarnastól í Bandaríkjunum hefur komist að raun um að ekki er hægt að festa pallinn í evrópska bíla samkvæmt leiðbeiningum. Þeir hafa þá gripið til þess ráð að kaupa sænska pallinn, sem fylgir Akta Graco, og nota hann í staðinn. En það er ekki ráðlegt því allir hlutar öryggisbúnaðar/barnabílstóla þurfa að vera prófaðir eftir sömu prófunarreglum.
Umferðarstofu hefur borist yfirlýsing frá framleiðendum Akta Graco í Svíþjóð þar sem fram kemur að þeir mæla ekki með að nota sænska pallinn fyrir Graco frá Bandaríkjunum því hann er ekki prófaður eftir sömu prófunarreglum og stóllinn sjálfur. Framleiðendur ábyrgjast ekki notkun á sænska pallinum nema fyrir Akta Graco.
Umferðarstofa minnir að lokum á að barnabílstóll sem ekki er festur í bílinn á réttan hátt veitir falskt öryggi.
Nánari upplýsingar veita: Margrét Sæmundsdóttir, Umferðarstofu, s. 5802024 og Herdís Storgaard, Lýðheilsustöð, s. 5800906 og 8400906
