Sími : 5 800 900
Árvekni-slysavarnir barna

Varasamt barnaglas - eða varasöm hitunaraðferð

8.4.2005

Þegar mjólk í pela eða barnaglasi er hituð í örbylgjuofni þarf að gera ákveðnar varúðarráðstarfanir svo að barnið brenni sig ekki þegar það drekkur mjólkina. Á neytendasíðu Morgunblaðsins birtist í þessari viku ábending um varasamt barnaglas hvað þetta varðar. Að öllum líkindum hefur hér frekar verið um að ræða ranga aðferðina við að hita mjólkina en að glasið sé sérstaklega varasamt.

Hita þarf á réttan hátt

Umrætt glas er þannig úr garði gert að ef það hvolfist þá hellist mjólkin ekki úr því. Þetta er vegna þess að í lokinu á glasinu eru tvö hólf sem mjólkin sýgst fyrst upp í þegar barnið drekkur og síðan fer hún út um stútinn. Bent var á að glasið væri hættulegt vegna þess að ef mjólk er í litla hólfinu, og glasið hitað með lokinu á í örbylgjuofni í 20 sekúndur, verður mjólkin í hólfinu sjóðheit og barnið getur brennst illa við að drekka hana.

Það sem gerist þegar glasið er sett í örbylgjuofn með mjólk í og lokinu þétt skrúfuðu á er eftirfarandi: í lokinu er ventill (skammtari) og þegar mjólkin hitnar myndast þensla og mjólkin sogast upp í skammtarahólfið. Þetta litla magn af mjólk hitar mun meira en mjólkin sem er í glasinu. Það sem málið snýst um hér er að hita ekki vökva í glasinu með lokinu á.

Sama gildir um innihald pela sem verið er að hita í örbylgjuofni, þar á heldur aldrei að hafa lokið á. Skrúfa á túttuna eða lokið á eftir að búið er að hita mjólkina. Síðan að hrista vökvann aðeins saman og prófa svo á handarbakinu hvort hann er of heitur eða hæfilegur fyrir barnið.

Þess má geta nokkur smábörn hafa brunnið illa í munni og hálsi eftir að hafa drukkið úr pela sem hitaðir voru með túttunni á.

Herdís L. Storgaard

verkefnastjóri barnaslysavarna,

Árvekni, Lýðheilsustöð

 

 



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica