Sími : 5 800 900
Árvekni-slysavarnir barna

Börn og hættan af frosnum vötnum og sjó

16.3.2005

Þar sem mikið frost hefur verið á landinu að undanförum dögum er sjór víða ísilagður við strendurnar og vötn frosin. Allir vita hvaða aðdráttarafl þetta hefur á börn og ungmenni. Foreldrar og forráðamenn eru því beðnir að vera þarna vel á verði og brýna fyrir börnum sínum að vera ekki að leik á ísnum.

Nýlegt dæmi um hættu

Í Morgunblaðið er sagt frá því nú í vikunni að tveimur tíu ára drengjum hafi verið bjargað í land við Borgarnes. Þeir komust í vandræði, eftir að hafa farið út á ísinn, þegar að hann byrjaði að brotna undan þeim. Björgunarsveitarmenn á staðnum komu þeim til hjálpar.

Við strendur Noregs og Svíþjóðar drukkna árlega nokkur börn og unglingar þegar þau fara þar út á ísinn. Ekki tekur nema nokkrar mínútur að lamast af kulda í sjónum þegar að mikið frost er úti. Dæmi er um svipuð slys hér landi á árunum 1984-1993.

Herdís L. Storgard

Verkefnastjóri barnaslysavarna

Árvekni



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica