Beint í leiðarkerfi vefsins.
Á næstu vikum mun Kiwanishreyfingin gefa öllum börnum í 1. bekk í grunnskólum landsins reiðhjólahjálma. Um er að ræða sérstakt átak í samvinnu Kiwanishreyfingarinnar og Eimskips en að auki nýtur verkefnið aðstoðar Lýðheilsustöðvar. Alls verður 4.500 reiðhjólahjálmum dreift í ár og er heildarverðmæti verkefnisins um 23 milljónir kr.