Beint í leiðarkerfi vefsins.
Skilgreining á nærdrukknun er: Barnið fer í öndunarstopp eða öndunar- og hjartastopp og þarfnast endurlífgunar. Slíkt ástand getur verið lífshættulegt. Sé barninu ekki komið til hjálpar mjög fljótt er hætta á súrefnisskorti sem orsakað getur varanlegan heilaskaða.
Þegar mjólk í pela eða barnaglasi er hituð í örbylgjuofni þarf að gera ákveðnar varúðarráðstarfanir svo að barnið brenni sig ekki þegar það drekkur mjólkina. Á neytendasíðu Morgunblaðsins birtist í þessari viku ábending um varasamt barnaglas hvað þetta varðar. Að öllum líkindum hefur hér frekar verið um að ræða ranga aðferðina við að hita mjólkina en að glasið sé sérstaklega varasamt.
Þar sem mikið frost hefur verið á landinu að undanförum dögum er sjór víða ísilagður við strendurnar og vötn frosin. Allir vita hvaða aðdráttarafl þetta hefur á börn og ungmenni. Foreldrar og forráðamenn eru því beðnir að vera þarna vel á verði og brýna fyrir börnum sínum að vera ekki að leik á ísnum.
Nú fer sá tími í hönd að börn fara almennt að vera lengur úti og þessum tíma kemur oft upp fikt með eldfæri. Börn fara að brenna sinu eða kveikja í einhverju öðru og því þurfa foreldrar og forráðamenn að vera sérstaklega á varðbergi og brýna fyrir börnunum hættuna af fikti með eld.
Á síðustu vikum hefur fjöldi kennara og foreldra haft samband við Árvekni vegna barna sem eru að leika hættulega leiki sem rekja má beint til sjónvarpsefnis.
Fyrir skömmu stakk barn sig á sprautunál sem það fann á skólalóð á höfuðborgarsvæðinu. Börn höfðu orðið vör við sprautuna og ætluðu að farga henni, með fyrrgreindum afleiðingum. Farið var með barnið strax til læknis þar sem það fékk viðeigandi meðferð.
Markaðsgæsluyfirvöld á norðurlöndunum létu prófa fimmtán ólíkar tegundir snuða og er niðurstaða prófunarinnar m.a. sú að þrjár tegundir þeirra teljast vera hættulegar börnum. Snuðtegundirnar hafa nú verið teknar af markaði en gætu verið í notkun á Íslandi þar sem tvær þeirra hafa verið seldar hér á landi.
Velferðasjóður barna á Íslandi lét gera tíu upplýsinga- og fræðslumyndir í því skyni að draga úr slysum barna. Sjóðurinn fékk Lýðheilsustöð og Tryggingamiðstöðina til samstarfs um verkefnið og er við það miðað að vekja athygli foreldra og forráðamanna barna, sem eru yngri en fjögurra ára, á þeim slysahættum sem leynast víða á heimilum og í næsta umhverfi barna.