Frá því í byrjun september 2004 hafa verið tilkynnt 10 slys sem orðið hafa þegar börn á aldrinum 7-14 mánaða hafa fallið aftur fyrir sig þegar þau hafa setið í háum barnastól við matarborð.
Árlega slasast fjöldi barna af völdum skotelda. Þau börn sem oftast slasast af þeirra völdum eru drengir á aldrinum 8-14 ára. Flest slys verða vegna þess að fullorðnir eru ekki að fylgjast með börnunum. Þar eru m.a. mörg dæmi um að börn sem eru að leika sér með skotelda, t.d. taka þá í sundur og fleira í þeim dúr. Áverkarnir sem börnin hljóta eru yfirleitt alvarlegir og má þar nefna djúp brunasár, augnáverka og jafnvel fingurmissir. Því er mikilvægt að foreldrar og forráðamenn barna kynni sér vel leiðbeiningar hér á eftir um meðferð skotelda – sem getur komið í veg fyrir alvarleg slys.Lesa meira
Landlæknisembættið hefur tekið saman upplýsingar um slys á börnum, 5-15 ára, meðan á kennaraverkfalli stóð nú í haust. Upplýsingarnar koma úr Slysaskrá Íslands. Skoðuð voru slys á ríflega 8 vikna tímabili og voru þau borin saman við sama tímabil árið á undan.Lesa meira