Beint í leiðarkerfi vefsins.
Frá því í byrjun september 2004 hafa verið tilkynnt 10 slys sem orðið hafa þegar börn á aldrinum 7-14 mánaða hafa fallið aftur fyrir sig þegar þau hafa setið í háum barnastól við matarborð.
Í fjölmiðlum var greint frá slysi sem átti sér stað laugardaginn 28. ágúst sem varð með þeim hætti að eins árs gamalt stúlkubarn sat í baðvaski þegar 3 ára gamalt barn skrúfaði frá heitavatnskrana með þeim afleiðingum að yngra barnið brenndist illa. Barnið var flutt á Landspítala-háskólasjúkrahús við Hringbraut.
Frá því er greint í Morgunblaðinu 30. ágúst að dagmóðir hafi bjargað lífi barns. Fram kemur að dagmóðirin hefur sótt skyndihjálparnámskeið og það verður aldrei of oft brýnt fyrir foreldrum né öðrum sem vinna með börnum hversu nauðsynlegt það er að kunna skyndihjálp.
Í rannsókn sem Erik Brynjar Schweitz Eiríksson læknanemi gerði nýlega í samvinnu við Slysaskrá Íslands, landlæknisembættið og fl. kemur fram að fækkað hefur verulega slysum á börnum, á aldrinum 0-4 ára, í heimahúsum og frítíma fjölskyldunnar.