Sími : 5 800 900

Árvekni-slysavarnir barna

Hvaða reglur gilda hér á landi um framleiðslu, innflutning og eftirlit leikvallatækja og undirlag þeirra - 10.12.2003

Þann 10. janúar 2003 tók gildi reglugerð nr. 942/2002 um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim. Markmið reglugerðarinnar er að stuðla að öryggi barna og annarra með því að leikvallatæki og leiksvæði sé hönnuð, frágengin og þeim viðhaldið á öruggan hátt. 

Lesa meira
 

Læra börn á hætturnar? - 26.5.2003

Í DV-Magasín 23. apríl sl. er viðtal við Inga Sigurðsson, bæjarstjóra í Vestmannaeyjum. Þar ræðir hann um hve gott var að alast upp í Eyjum og hann er ánægður með að geta boðið sínum börnum það sama. Ingi heldur áfram og segir: Lesa meira
 

29 leikskólabörn í bráðri lífshættu. Sátu í framsæti bíla með öryggispúða fyrir framan sætið - 26.5.2003

Íslendingar ætla seint að læra að börn eiga rétt á því að vera vel varin í bíl. Það er niðurstaða könnunar sem gerð var nýlega á notkun öryggisbúnaðar fyrir börn í bílum. Kannaður var búnaður hjá 1.995 börnum við 83 leikskóla í 39 sveitafélögum. Í ár voru 6% barna laus eða 117 börn. Er það besti árangur frá því að farið var að kanna öryggi barna í bílum árið 1996. Þá voru 288 börn laus af 1.028 eða 28% barna. Að 117 laus börn í bíl skuli vera besti árangur segir sína sögu.  Lög um sérstakan öryggisbúnað fyrir börn í bíl eru frá árinu 1990 og eru nokkur ár frá því að lögreglu var gert að sekta ökumenn um 10.000 kr ef börn nota ekki öryggisbúnað í bíl.  Lög um skyldunotkun bílbelta hafa verið í gildi í áratugi og kemur því á óvart að 316 foreldrar hafi verið án öryggisbeltis þegar könnunin var gerð. Lesa meira
 

Markaðsgæsludeild Löggildingarstofu bannar sölu á gúmmíboltum - 20.5.2003

Markaðsgæsludeild Löggildingarstofu hefur bannað sölu á gúmmíboltum með áföstum teygjanlegum gúmmíþræði með hring á endanum, svokallaðir Yoyo boltar. Lesa meira
 

Stúlka festi hettu í glugga í skólastofu - 20.5.2003

Þann 16. maí sl. greindi DV frá því að litlu hefði mátt muna að illa færi þegar stúlka sem var að klifra í glugga í skólastofu í Birkimelsskóla á Barðaströnd festi hettu í krækju í glugganum. Atvikið varð með þeim hætti að stúlkan var að stökkva niður úr glugga og festist hettan í krækju og hertist að hálsi hennar. Lesa meira
 

14 ára drengur brennist í setlaug - 29.4.2003

14 ára drengur brenndist illa á læri um páskana, þar sem hann var með fjölskyldu sinni í sumarbústað á Suðurlandi. Lesa meira
 

7 ára drengur hlýtur 22,5% brunasár - 29.4.2003

Síðastliðinn páskadag varð 7 ára drengur fyrir alvarlegum bruna þegar hann fékk yfir sig eldavél og pott með sjóðandi vatni sem á henni var. Lesa meira
 

Barnagæsla - 28.4.2003

Framundan eru sumarfrí í leik- og grunnskólum og standa margir foreldrar frammi fyrir vanda með gæslu fyrir börnin sín. Ekki hafa allir kost á því að taka frí í sinni vinnu á þeim tíma sem börnin eru í fríi og þurfa því margir að ráða einhvern til að gæta barnanna. Lesa meira
 

Tveggja ára barni bjargað úr tjörn - 28.4.2003

Móðir tveggja ára stúlku hafði samband við Árvekni til að kanna hvaða reglur væru í gildi varðandi tjarnir í görðum. Stúlkan hennar hafði verið úti að leika sér og fór yfir í garð nágrannanna og datt þar ofan í tjörn fulla af vatni. Sem betur fer varð henni ekki meint af fallinu og fékk að fara heim eftir læknisskoðun á sjúkrahúsi í Reykjavík. Lesa meira
 

3 ára telpa klemmist í lyftuhurð - 15.4.2003

Laugardaginn 12. apríl hafði móðir 3 ára telpu samband við Árvekni. Dóttir hennar hafði fyrr um daginn lent í því að klemma handlegg í lyftuhurð í verslunarmiðstöðinni Firði í Hafnarfirði. Telpan slapp ótrúlega vel vegna skjótra viðbragða þeirra sem voru nærri þegar atburðurinn átti sér stað.  Barnið fór á slysadeildina í Fossvogi en við læknisskoðun kom fram að hún hafði einungis marist illa. Lesa meira
 

Smábarn verður fyrir eitrun vegna plöntu - 15.4.2003

Fyrir tæpum mánuði varð 1 árs barn fyrir eitrun eftir að það hafði komist í þyrnikaktus. Talið er að barnið hafi brotið kaktusinn og við það hafi runnið úr honum út hvítur safi. Barnið hefur sett hann í munninn því í munni þess voru brunasár og blöðrur. Læknirinn sem skoðaði barnið eftir óhappið kannaði málið betur og komst að því þyrnikaktus er mjög eitruð planta og er hún talsvert algeng á heimilum hér á landi.  Áhrif eitrunarinnar geta verið krampar sem leitt geta til öndunarörðugleika og jafnvel dauða.  Sem betur fer hafði barnið ekki fengið of mikið af vökvanum upp í sig en litlu mátti muna. Lesa meira
 

Lá týndur undir rúmi - 9.4.2003

Í Morgunblaðinu 8. apríl síðastliðinn er sagt frá því að 6 ára drengur hafi verið talinn týndur og leitað hafi verið að honum í einhvern tíma. Sem betur fer fannst hann heill á húfi, sofandi undir rúmi á heimili sínu. Börn á þessum aldri leika sér mikið í feluleik og hika ekki við að skoða ólíklegustu staði á heimili sínu.  Það er því mikilvægt að leita alltaf af sér allan grun um að barnið sé ekki heima áður en farið er að leita að því utan dyra.

Lesa meira
 

Barn féll út um glugga - 9.4.2003

Greint var frá því í Morgunblaðinu þann 9. apríl að eins og hálfs árs gamalt barn hefði fallið út um glugga á 2. hæð. Fram kemur í fréttinni að barnið hafi ekki hlotið alvarlega áverka. Lesa meira
 

Lá við stórslysi í leikskóla þegar barn stökk úr gluggakistu með snúru úr rimlagardínu um hálsinn - 12.3.2003

Fyrir nokkru hlaut barn áverka á hálsi eftir að hafa sett snúru úr rimlagardínu um hálsinn á sér og stokkið síðan niður úr gluggakistu. Litlu munaði að illa færi. Barnið var í leikskóla og þar höfðu starfsmenn sett upp krók til þess að vefja snúrunni um en hann var ekki notaður.  Lesa meira
 

Blöðrur geta verið lífshættulegar fyrir smábörn - 3.3.2003

Margir foreldrar hafa haft samband við Árvekni og bent á að víða sé verið að gefa smábörnum óuppblásnar Lesa meira
 

Öryggi barna í flugi - 3.3.2003

Í október árið 2000 sendu formaður og framkvæmdastjóri Árvekni bréf til samgönguráðherra þar sem spurt var um stefnu íslenskra stjórnvalda í öryggismálum barna í flugi. Samgönguráðuneytið vísaði málinu til Flugmálastjórnar. Svar barst við bréfinu í desember sama ár og kemur fram í því að ekki séu í gildi neinar sérstakar reglur um öryggi barna eldri en 2ja ára nema þá þær sem gilda fyrir fullorðna farþega.  Aftur á móti er í gildi regla fyrir börn yngri en 2ja ára, en hún er sú að barnið skuli vera fest í sæti hjá fullorðnum einstaklingi með viðbótarlykkjubelti. Lesa meira
 

Er barnið þitt ávallt öruggt í umferðinni? - 21.1.2003

Slys á börnum á Íslandi er mikið vandamál og eru slys á börnum helmingi algengari á Íslandi en í nágrannalöndunum sem við berum okkur gjarnan saman við. Slys á börnum má í langflestum tilvikum fyrirbyggja með góðum forvörnum, aðgæslu og fræðslu. Nú er sá árstími að það er myrkur nánast allan sólarhringinn. Umferðarþungi er mikill og óvæginn og allir eru að flýta sér. Því er mikilvægt að allir taki höndum saman og vinni að því að fækka slysum. Lesa meira
 

Ný reglugerð um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim. - 21.1.2003

Fyrir tæpum tveimur árum fóru formaður og framkvæmdastjóri Árvekni, ásamt tveimur stjórnarmönnum á fund umhverfisráðherra. Á fundinum var rætt um tíð slys á börnum á skipulögðum leiksvæðum barna og bent var leiðir til úrbóta.  Lesa meira
 






Þetta vefsvæði byggir á Eplica