Sími : 5 800 900
Árvekni-slysavarnir barna

Tíu smábörn hafa að undanförnu oltið í háum matarstólum

28.12.2004

Frá því í byrjun september 2004 hafa verið tilkynnt 10 slys sem orðið hafa þegar börn á aldrinum 7-14 mánaða hafa fallið aftur fyrir sig þegar þau hafa setið í háum barnastól við matarborð.

Slysin urðu með þeim hætti að börnunum tókst að spyrna fótum í brík undir borðinu eða borðplötuna. Tvö barnanna fengu heilahristing en hinum varð ekki meint af. Sameinglegt var hjá öllum foreldrunum sem tilkynntu slysin til Árvekni að þeim hafði ekki dottið í hug að barnastólarnir gætu oltið um koll. Fram kom í samtali við foreldrana að ekki var um neina eina tegund stóla að ræða. Athygli vakti þó að margir virtust hafa óbilandi trú á ákveðinni tegund stóla, þ.e. að þeir gætu alls ekki oltið. En staðreyndin er sú að „allir“ stólar geta oltið þegar að barn spyrnir fótunum í borð, eða annan fastan hlut, eins og áður er lýst. Foreldrarnir sögðu líka að þeir hefðu ekki heldur gert sér grein fyrir þeim styrk sem smábörn hafa í fótum og það kom þeim verulega á óvart að heyra að spyrnukrafturinn hjá börnum á þessum aldri er um 7-9 kíló.

Mikilvægt er því fyrir foreldra, og aðra, sem nota svona háa barnastóla að huga að öryggisráðstöfunum. Hægt er að kaupa nælonborða sem er með plastspennum á báðum endum, svipuðum og er á reiðhjólahjálmum, en þeir fást í verslunum sem selja útivistarbúnað. Meðfylgjandi myndir sýna borðann og hvernig búið er að festa stólinn við borðið.

Hár barnastóll með borða

Algengur hár barnastól með nælonborða.

Borðinn er klipptur í tvennt og öðrum endanum komið fyrir undir borðplötunni og hinum undir sæti stólsins eða þar sem hægt er að festa hann á stólinn. Borði festur undir borðplötu Borðunum er svo smellt saman og þannig er stóllinn orðinn fastur við borðið. borði festur við stól




Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica