Allt hefur áhrif
Verkefni Lýðheilsustöðvar hlýtur viðurkenningu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar
Verkefni Lýðheilsustöðvar: Allt hefur áhrif – einkum við sjálf hefur fengið viðurkenningu
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar - WHO Counteracting Obesity Award – fyrir lýðheilsustarf sem styður við aðgerðir sveitarfélaga til að efla lýðheilsu með bættri næringu og aukinni hreyfingu sem eru liðir í að sporna gegn vaxandi offitu þjóðarinnar.
Verkefnið var valið úr 202 umsóknum frá 35 löndum, en 14 önnur verkefni fengu viðurkenningu á fundinum.
Verðlaunaafhendingin fór fram í Istanbúl í Tyrklandi 16. nóvember á ráðherrafundi Evrópudeildar Alþjóðaheilsbrigðismálastofnunarinnar, um viðbrögð við offituvandanum. Viðstaddar verðlaunaafhendinguna voru Anna Elísabet Ólafsdóttir, forstjóri Lýðheilsustöðvar, Jórlaug Heimisdóttir, verkefnisstjóri Allt hefur áhrif – einkum við sjálf og Hólmfríður Þorgeirsdóttir, verkefnisstjóri næringar hjá Lýðheilsustöð. Auk þeirra voru á fundinum fulltrúar frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, Ragnheiður Haraldsdóttir, skrifstofustjóri og Una María Óskarsdóttir verkefnisstjóri.
Fulltrúar Íslands á ráðherrafundinum í Istanbúl talið frá vinstri, frá Lýðheilsustöð Hólmfríður Þorgeirsdóttir, verkefnisstjóri næringar, Anna Elísabet Ólafsdóttir forstjóri og Jórlaug G. Heimisdóttir verkefnisstjóri Allt hefur áhrif - einkum við sjálf og frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, Ragnheiður Haraldsdóttir, skrifstofustjóri og Una María Óskarsdóttir verkefnisstjóri
Verkefnið Allt hefur áhrif – einkum við sjálf er þverfaglegt verkefni innan Lýðheilsustöðvar og koma því margir starfsmenn stöðvarinnar að því. Þetta er mikill heiður fyrir Lýðheilsustöð en þarna gefast tækifæri til að kynna verkefnið fyrir ýmsum fulltrúum aðildarríkja Evrópudeildar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar.
Nánari upplýsingar um verkefnið: Allt hefur áhrif - einkum við sjálf
Nánari upplýsingar um ráðherrafundinn í Istanbúl


