Sími : 5 800 900

Allt hefur áhrif

Allt hefur áhrif samráðsfundur

26.1.2006

Fyrsti samráðsfundur Lýðheilsustöðvar og sveitarfélaganna 25 sem taka þátt í verkefninu Allt hefur áhrif-Smellið á myndina til að lesa um verkefniðeinkum við sjálf! fer fram á Hótel Nordica föstudaginn 27. janúar. Allt hefur áhrif-verkefnið hófst formlega haustið 2005 en Lýðheilsustöð hefur unnið að undirbúningi þess frá árinu 2004, m.a. með því að fá sveitarfélög um allt land til samstarfs. Verkefnið hefur það að markmiði efla og bæta næringu og hreyfingu barna og ungmenna sem og fjölskyldunnar í heild.

Óskað álits unga fólksins

Rúmlega 100 manns eru skráðir til þátttöku en auk fulltrúa sveitarfélaganna eru ýmsir fleiri boðaðir á fundinn, einkum til að hlýða á kynningu á verkefninu og hvernig það hefur gengið fram til þessa, sem og að hlýða á niðurstöður frummats á aðstæðum í sveitarfélögunum sem taka þátt. Þessi þáttur dagskrárinnar fer fram fyrir hádegi. Eftir hádegishlé tekur við vinna í vinnuhópum þar sem þátttakendur leggja sitt af mörkum varðandi framhaldsstarfið við verkefnið í sveitarfélögunum. Þarna er ekki síst litið til þess að fá sjóharhorn og álit unga fólksins sjálfs og það munu vinna þrír hópar ungs fólks, undir stjórn reynds stjórnanda, en um 25 fulltrúar unga fólksins mæta á fundinn. Þess má geta að þau flugfélög sem sinna innanlandsflugi styrktu þátttöku unga fólksins með því að veita því verulegan afslátt af flugfargjöldum.

    
 
 Nytt_Landsflugslogo  Flugfelag_Islands_


Sjá dagskrá fundarins

Veggspjöld og auglýsingar

Landsmenn hafa væntanlega orðið varir við þetta verkefni í gegnum létt og skemmtileg skilaboð þar um í formi sjónvarpsauglýsinga, sem sýndar voru í nóvember og desember sl., og veggspjalda sem væntanlega hanga uppi víða, a.m.k. í þátttökusveitarfélögunum sem og á ýmsum stórum vinnustöðum. Einnig er nýkomin út á vegum Lýðheilsustöðvar nýr fæðuhringur og hreyfihringur sem einnig eru nýttir í tengslum við Allt hefur áhrif-verkefnið.
Þess má geta að hægt er að panta veggspjöldin hjá Lýðheilsustöð og eru þau ókeypis.

Panta veggspjöld

Algjör draumur, smella á mynd til að stækka Ókeypis frískt loft, smella á mynd til að stækkka Fæðuhringur, smellið á mynd til að stækka
Tilboð í stigagöngu, smellið á mynd til að stækka Frítt 5 á dag, smellið á mynd til að stækka hreyfihringurinn- smellið á mynd til að stækka


 

 



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica