Sími : 5 800 900

Allt hefur áhrif

Allt hefur áhrif, einkum við sjálf! - Lokaskýrsla

29.4.2011

Forsíða lokaskýrslu Allt hefur áhrif - einkum við sjálf!

Út er komin hjá Lýðheilsustöð lokaskýrsla Allt hefur áhrif, einkum við sjálf!. Skýrslan nær yfir helstu þætti starfsemi, árangur og samstarf um verkefnið frá árinu 2004.

Út er komin hjá Lýðheilsustöð lokaskýrsla Allt hefur áhrif, einkum við sjálf!. Skýrslan nær yfir helstu þætti starfsemi, árangur og samstarf um verkefnið frá árinu 2004.

 

Allt hefur áhrif, einkum við sjálf! var verkefni á vegum Lýðheilsustöðvar sem unnið var í samstarfi við heilsugæsluna og sveitarfélög á Íslandi. Markmið verkefnisins er að stuðla að heilbrigðum lífsháttum barna og fjölskyldna þeirra með áherslu á aukna hreyfingu og bætt mataræði. Þar er meðal annars brugðist við þeirri þróun að börn á Íslandi hafa verið að þyngjast, kyrrseta að aukast og neysluvenjur að breytast.

Í  formála skýrslunnar segir Jórlaug Heimisdóttir, verkefnastjóri, meðal annars:

„Lýðheilsustöð var stofnuð árið 2003 samkvæmt lögum nr. 18/2003. Ákveðið var að fyrsta verkefni nýrrar stofnunar yrði unnið í samstarfi við sveitarfélög og heilsugæsluna á Íslandi. Það skyldi vera sem liður í að sporna gegn þeirri ofþyngdar- og offituþróun sem orðið hefur undanfarna áratugi“

Verkefninu Allt hefur áhrif, einkum við sjálf! var sett sýn og stefna til ársins 2010, sem hefur nú runnið sitt skeið. Það er von verkefnisstjóra að sú reynsla og þekking, sem áunnist hefur og þróast með verkefninu, verði nýtt er Embætti landlæknis tekur yfir starfsemi Lýðheilsustöðvar þar sem reynsla og klassísk fræði lýðheilsunnar fá notið sín.

 

 




Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica