Allt hefur áhrif
Allt hefur áhrif í Kópavogi
Lýðheilsustöð hrinti úr vör verkefninu Allt hefur áhrif-einkum við sjálf! árið 2005, samstarfsverkefni stöðvarinnar og nokkurra sveitarfélaga í landinu um bætt mataræði og hreyfingu barna og fjölskyldna í sveitarfélaginu. Hvert og eitt sveitarfélag vinnur að verkefninu með sínum hætti og segja má að í Kópavogi hafi málin nú verið tekin föstum tökum, eins og m.a. má sjá í nýjasta hefti Kópavogspóstsins undir fyrirsögninni „Koma svo Kópavogsbúar!“Fram kemur að Kópavogsbær stefni að því að efla lýðheilsu almennt í bæjarfélaginu, m.a. með því að hvetja bæjarbúa til að huga vel að andlegri og líkamlegri vellíðan sinni og hlúa að fjölskyldutengslunum. Til að auðvelda bæjarbúum að nálgast fræðsluefni um góða lifnaðarhætti er í Kópavogspóstinum 24 síðna sérblað þar sem greint er frá því sem bæjarbúum stendur til boða í þeim efnum, birt viðtöl við fólk sem greinir frá sínum leiðum til að stuðla að góðri heilsu auk viðtala við ýmsa sérfræðinga, m.a. nokkurra sem starfa á Lýðheilsustöð.
Kópavogsbæ og blaðinu er óskað til hamingju með þetta framtak – og auðvitað góðs árangurs. Mörg önnur sveitarfélög eru einnig að vinna af krafti samkvæmt þeim áherslum sem lagðar eru í Allt hefur áhrif-verkefninu. Verkefnisstjóri frá upphafi hefur verið Jórlaug Heimisdóttir en lesa má meira um verkefnið á vefsíðu þess.
