Sími : 5 800 900

Allt hefur áhrif

Allt hefur áhrif, einkum við sjálf! Nýtt verkefni Lýðheilsustöðvar

6.1.2005

Lýðheilsustöð er að ýta úr vör þróunarverkefni í samvinnu við sveitarfélög í landinu til að bregðast við þeirri þróun að börn og ungmenni á Íslandi eru að þyngjast.

Ofþyngd barna og unglinga er vaxandi vandamál í vestrænum löndum og sýna tölur að þar er Ísland síður en svo undanskilið. Samkvæmt niðurstöðum rannsókna eru um 20% íslenskra barna yfir kjörþyngd.

Allt hefur áhrif, einkum við sjálf! eru einkunnarorð þessa þróunarverkefnis. Verkefnið hefur það að markmiðiSmellið á myndina til að lesa meira að bæta lífshætti barna og fjölskyldna þeirra með áherslu á hreyfingu og góða næringu. Lýðheilsustöð kemur að verkefninu með ráðgjöf og fræðslu og metur árangur verkefnisins á hverjum stað. Gerð verður könnun þar sem annars vegar verða kannaðir þættir sem snúa að skólastarfi og umhverfi barnsins og hins vegar þættir sem snúa að ungmennunum sjálfum, viðhorfum þeirra, hæfni og atferli. Hvert sveitarfélag, sem tekur þátt í verkefninu, mótar stefnu og aðgerðaáætlun um aukna hreyfingu og bætta næringu barna í sinni heimabyggð í samræmi við eigin þarfir og aðstæður. Því má gera ráð fyrir að verkefnin verði ólík, bæði hvað varðar nálgun og umfang. Á næstu mánuðum er ætlunin að kynna verkefnið frekar í sveitarfélögum landsins.

Aðstæður barna og unglinga mótast af samfélaginu í heild. Ef ætlunin er að bæta lífshætti barna og unglinga er samvinna lykilorðið. Þar gegna fjölskyldur, skólar og aðrar menntastofnanir mikilvægu hlutverki auk heilsugæslu, íþrótta- og æskulýðsstarfsemi, félagasamtaka og fyrirtækja.

Jórlaug Heimisdóttir er verkefnisstjóri Allt hefur áhrif, einkum við sjálf!. Jórlaug útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur frá Háskóla Íslands 1994 og lauk meistaraprófi í lýðheilsu (Public Health) frá Kaupmannahafnarháskóla 2004.



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica