Sími : 5 800 900
Lýðheilsustöð

Geðrækt - nýr bæklingur

18.10.2004

Nýr bæklingur Geðræktar kom út 9. október í tilefni af Alþjóða geðheilbrigðisdeginum 2004. Bæklingurinn er gefinn út fyrir tilstyrk Kvennahlaups ÍSÍ.

Smellið á myndina til að skoða bæklinginnÚtgáfa bæklingsins er liður í fræðslustarfi Geðræktar og mun honum verða dreift á heilsustofnanir og aðra staði þar sem auðvelt er að nálgast hann. Ennfremur er hægt að panta hann hér á heimasíðunni (útgefið efni).

Formlegt samstarf Kvennahlaups ÍSÍ og Lýðheilsustöðvar hófst nú í sumar. Síðustu 3 ár hefur ÍSÍ nýtt styrk Kvennahlaupsins til að vekja sérstaka athygli á heilsufarsmálefnum sem snerta ekki síst konur og hefur snertiflöturinn verið mikilvægi hreyfingar sem forvörn og meðferð. Leiðarljós Kvennahlaupsins í ár - sem fagnaði 15 ára afmæli sínu - var mikilvægi hreyfingar fyrir andlega heilsu: Hreyfingin eflir andann – gefðu þér tíma. Auk þess að vekja sérstaka athygli á geðheilbrigði var ákveðið að hluti af þátttökugjaldi hlaupsins ætti að renna til málefna sem væru í takt við þema hlaupsins og þannig kom til útgáfustyrkur Geðræktarbæklingsins. Lýðheilsustöð metur samstarfið mikils og þakkar kærlega fyrir stuðninginn við þetta mikilvæga verkefni.

Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn 2004

Mikið var um að vera 9. október til að vekja athygli á málefnum geðsjúkra og ágætisþátttaka í dagskrá sem að mestu leyti fór fram í Ráðhúsi Reykjavíkur. Gengið var með blöðrur niður Laugaveginn og þeim síðan sleppt við Ráðhúsið sem tákn fyrir leiðarljós dagsins: að fólk ,,sleppi grímunni".

Smellið á myndina til að stækka.

Hér fremstur í göngunni niður Laugaveginn er Jón Kristjánsson, ráðherra. Fyrir aftan hann, í blárri úlpu, er Guðrún Guðmudnsdóttir, verkefnisstjóri Geðræktar.

Smellið á myndina til að stækka.




Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica