Eins árs gömul stúlka brennist illa í baðvaski
Í fjölmiðlum var greint frá slysi sem átti sér stað laugardaginn 28. ágúst sem varð með þeim hætti að eins árs gamalt stúlkubarn sat í baðvaski þegar 3 ára gamalt barn skrúfaði frá heitavatnskrana með þeim afleiðingum að yngra barnið brenndist illa. Barnið var flutt á Landspítala-háskólasjúkrahús við Hringbraut.
Í framhaldi af þessari frétt og þeirri staðreynd að um helmingur brunaslysa á börnum verður af völdum hitaveituvatns er vert að brýna fyrir foreldrum - og öðrum fullorðnum - að aldrei má skilja lítil börn eftir ein á baðherbergjum eða í umsjón annarra barna. Lítil börn hafa ekki þroska til að skynja hætturnar sem eru í þeirra nánasta umhverfi.
Húð barna mun viðkvæmari
Húð lítilla barna er mun viðkvæmari en húð fullorðinna. Sem dæmi má nefna að 70°C heitt vatn getur orsakað þriðja stigs bruna á hálfri sekúndu hjá litlu barni en sams konar bruni yrði á 1 sekúndu hjá fullornum. Einnig er mikilvægt að benda á að lítil börn hafa ekki sömu viðbragðshæfni og fullorðnir. Það getur tekið lítið barn allt upp í 2,5 mínútur að koma sér upp úr heitu vatni sem það tekur þann fullorðna nokkrar sekúndur – komist það upp úr vatninu.
Hitaveituvatn orsök helmings brunatilfella
Vatn er víða mjög heitt á Íslandi og það er mismunandi eftir svæðum hversu heitt vatnið í krönunum getur orðið. Á sumum svæðum fer heita vatnið vel yfir 90°C. Mjög mikilvægt er að foreldrar kynni sér hitastig vatnsins og geri viðeigandi ráðstafanir. Mikið öryggi er að hafa hitastillingu á öllu baðvatni og afar mikilvægt er að gera samstundis við ef tækið bilar því mörg slys má einmitt rekja til þess að búnaðurinn var bilaður. Lítil börn geta brennt sig ef vatnið fer yfir 40°C. Það þarf ekki mikið magn af vatni til að stór hluti líkama lítils barns brenni.
Séu ástæður brunaslysa hjá börnum á aldrinum 0-4 ára skoðaðar þá kemur í ljós að helmingur barnanna brenndist þegar heitur matur eða drykkur helltist yfir þau en hitaveituvatn brenndi hinn helming barnanna. Flest slys verða þegar að börn eru skilin eftir í umsjón systkina. Börn hafa þá skúfað frá heitavatnskrananum í óvitaskap og nokkur slys hafa orðið þegar að börn hafa fallið í setlaugar sem hafa verið fullar að sjóðheitu vatni. Öryggisins vegna ættu allir sem eru með setlaugar að vera með hitavara á þeim. Svo eru dæmi um að óvitar hafi hvolft yfir sig sjóðheitu vatni úr skúringarfötum og því er vert að benda á að fólk gæti þess að smábörn séu ekki nálagt við slíkar aðstæður.
Brunaslys eru mjög sársaukafull og huga þarf vel að andlegum afleiðingum slysa af þessu tagi. Rannsóknir sýna að börn sem brennast eru í ákveðnum áhættuhópi hvað þetta varðar.
Foreldrar og aðrir eru hvattir til að kynna sér nánar þær upplýsingar um barnaslysavarnir sem eru á heimasíðu Lýðheilsustöðvar.
Herdís L. Storgaard
verkefnastjóri Árvekni-slysavarnir barna
Lýðheilstöð
