Sími : 5 800 900
Lýðheilsustöð

Dagmóðir bjargar lífi barns

31.8.2004

Frá því er greint í Morgunblaðinu 30. ágúst að dagmóðir hafi bjargað lífi barns. Fram kemur að dagmóðirin hefur sótt skyndihjálparnámskeið og það verður aldrei of oft brýnt fyrir foreldrum né öðrum sem vinna með börnum hversu nauðsynlegt það er að kunna skyndihjálp.

Um langt árabil hafa dagmæður í Kópavogi, Reykjavík og Mosfellsbæ verið skyldaðar til að halda við þekkingu sinni með því að sækja sérstakt námskeið í skyndihjálp þriðja hvert ár. Námskeiðið sem um ræðir heitir „Slys á börnum, forvarnir og skyndihjálp“ en einnig eru kenndar slysavarnir. Ekki eru gerðar sömu kröfur til dagmæðra og þeirra námskeiða sem þær sækja á öllu landinu en mikilvægt er að sveitarfélög íhugi að samræma reglur þar um. Atvikið sem sagt er frá hér í upphafi sýnir enn og aftur nauðsyn vera vel að sér í skyndihjálp.

Foreldrum er að auki bent á að kynna sér upplýsingar um þroska barna en þar kemur m.a. fram að lítil börn skynja ekki hætturnar í sínu nánasta umhverfi. á ákveðnu tímabili setja þau t.d. allt sem þau sjá í munninn á sér og þá er mikilvægt að fylgjast sérstaklega vel með þeim og fjarlægja alla smáhluti.

Nánari upplýsingar um köfnun og aðskotahluti í hálsi eru einnig til staðar. Foreldrar eru eindregið hvattir til að kynna sér hvernig koma má í veg fyrir slík slys sem og hvernig losa megi aðskotahluti úr hálsi barns.

Herdís L. Storgaard
verkefnisstjóri
Árvekni-slysavarnir barna



Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica