Úthlutun úr Forvarnasjóði
Yfirlit
Forvarnasjóður er skilgreindur í lögum um gjald af áfengi skv. 7. gr. laga nr. 96/1995 um gjald á áfengi og 3.tl. 3.gr. laga nr. 76/1998 um áfengis- og vímuvarnaráð. Auglýst var eftir styrkumsóknum í janúar sl. og alls bárust 111 umsóknir að upphæð kr. 177.514.187.
Áfengis- og vímuvarnaráð gerir tillögur að úthlutun til heilbrigðisráðherra og í ár var samþykkt að úthluta tæpum 35 milljónum króna til um 50 verkefna og að vanda er 10 milljónum króna úthlutað til áfangaheimila. Alls er því úthlutað um 45 milljónum króna úr Forvarnasjóði. Úthlutað var úr sjóðnum í fyrsta sinn árið 1996 og í ár er því úthlutað úr sjóðnum í 9. sinn. Sú breyting er þó á að nú fer úthlutunin í fyrsta sinn fram á vegum Lýðheilsustöðvar því með stofnun stöðvarinnar, 1. júlí 2003, var starfsemi áfengis- og vímuvarnaráðs felld undir starfsemi Lýðheilsustöðvar.
Forvarnaverkefni um allt land
Styrkir úr Forvarnasjóði hafa gert sveitarfélögum, félagasamtökum, grasrótarsamtökum og einkaaðilum kleift að standa að fjölmörgum og margvíslegum forvarnaverkefnum um allt land. Listinn yfir verkefnin sem hljóta styrki í ár gefur
ágætis vísbendingu um þá grósku sem er í þessum málaflokki.
Í ár fór úthlutunin fram í Kaffi Flóran í Grasagarðinum að viðstöddu fjölmenni. Fundarstjóri, Kolfinna Jóhannesdóttir, formaður áfengis- og vímuvarnaráðs bauð viðstadda velkomna og að því loknu ávarpaði Jón Kristjánson, heilbrigðisráðherra, fundargesti. Síðan flutti Anna Elísabet Ólafsdóttir, forstjóri Lýðheilsustöðvar ávarp.
Heilbrigðisráðherra veitti því næst Helga Seljan viðurkenningu fyrir störf sín í þágu áfengis- og vímuvarna. Sviðslistahópurinn Rauðu skórnir sýndi atriði úr leiksýningu sinni og að því loknu tilkynnti Hildur Hafstein, verkefnisstjóri áfengis- og vímuvarna, hvaða verkefni hefðu hlotið styrki í ár.
Að formlegri dagskrá lokinni var boðið upp á léttar veitingar, í anda Lýðheilsustöðvar, sem gestir gæddu sér á við undirleik hljómsveitarinnar Vinir Kela.

Forvarnasjóður
|
Verkefni |
Styrkur |
|
Samráðshópur bindindisfélaganna |
10.000.000 |
|
Vertu til – Sveitarfélagaverkefni |
4.500.000 |
|
Saman hópurinn – „Undir sama(n) þaki?“ Hvatning og stuðningur til foreldra |
1.500.000 |
|
Ný leið ráðgjöf – „Lífslistin“ þróunarverkefni fyrir 15-18 ára . Námskeið í listum og lífsleikni. |
1.000.000 |
|
UMFÍ – Unglingalandsmót UMFÍ 2004 á Sauðárkróki |
1.000.000 |
|
Vímulaus æska – Stuðningsmeðferð fyrir unglinga sem lokið hafa langtímameðferð |
1.000.000 |
|
Fjölsmiðjan – „Upp með sjálfstraustið“ |
800.000 |
|
Rauðu skórnir, sviðslistarhópur – Leiksýning fyrir elstu nemendur grunnskóla og framhaldsskólanemendur. |
800.000 |
|
Sumarheimili templara – Bindindismótið í Galtalækjarskógi 2004 |
800.000 |
|
Jafningjafræðslan Hitt húsið |
700.000 |
|
Hafnarfjarðarbær – Eftirfylgdarþjónusta vegna brottfalls úr framhaldsskóla |
600.000 |
|
Austur-Hérað – „Inn í hlýjuna“ fyrir aldurshópinn 16-20 ára |
500.000 |
|
Bindindisfélag ökumanna – Átak gegn ölvunarakstri |
500.000 |
|
\ElísabetKarlsdóttir og Jóhanna Rósa Arnardóttir –Könnun á viðhorfum ungs fólks til forvarna |
500.000 |
|
Félagsmiðstöðin Vitinn Hafnarfirði – Foreldraskóli |
500.000 |
|
Hildigunnur Ólafsdóttir– Rannsókn á áfengisneyslu, veitingahúsum og menningu |
500.000 |
|
Menntasmiðjan á Akureyri – Fyrir 17-26 ára sem ekki eru í vinnu eða skóla |
500.000 |
|
SÁÁ – Útihátíð |
500.000 |
|
Skógarmenn KFUM í Vatnaskógi – Sæludagar í Vatnaskógi 2004 |
500.000 |
|
Stýrihópur um forvarnir f.h. Bessastaðahrepps – Uppbyggingarstefna |
500.000 |
|
Vímulaus æska – „Börn eru líka fólk“ |
500.000 |
|
Vímulaus æska – Fjölskylduráðgjöfin |
500.000 |
|
„Hættu áður en þú byrjar“ – Mat á verkefninu |
400.000 |
|
Áhugafélagið Húsið – Menningar- og kaffihús fyrir ungt fólk í Vestmannaeyjum |
400.000 |
|
Miðborgarstarf KFUM og KFUK |
400.000 |
|
Bindindissamtökin IOGT – Barnablaðið Æskan |
300.000 |
|
Bindindisfélag ökumanna – Hvatning til neyslu óáfengra drykkja |
300.000 |
|
Fjölskyldumiðstöð – Kynning á ráðgjöf |
300.000 |
|
Forvarnanefnd Garðabæjar – „Strax“ fyrir13-18 ára unglinga sem ratað hafa í afbrot og vímuefnaneyslu |
300.000 |
|
Hósanna hópurinn – Götu hjálparstarf |
300.000 |
|
SAMFÉS – Helgarsmiðjur fyrir unglinga 13-16 ára |
300.000 |
|
SAMFOK – Styrkja foreldra og efla foreldrarölt |
300.000 |
|
Átak í forvörnum í Skagafirði – Geymsla, unglingahús |
200.000 |
|
Félagsmiðstöðin Hraunið, Hafnarfirði – Unglingar á batavegi, drengir 13-18 ára |
200.000 |
|
Félagsmiðstöðin Ný-ung, Egilsstöðum – „Sterkar stelpur“ |
200.000 |
|
Forvarnanefnd Hafnarfjarðarbæjar og Íþróttabandalag Hafnarfjarðar – Fjölskyldan saman, gaman |
200.000 |
|
Gamla apótekið – Menningar- og kaffihús fyrir ungt fólk á Ísafirði |
200.000 |
|
Hættu áður en þú byrjar – Fíkniefnafræðsla fyrir nemendur 8. bekk og foreldrar þeirra |
200.000 |
|
Hættu áður en þú byrjar – Fíkniefnafræðsla fyrir nemendur 9. bekk og foreldrar þeirra |
200.000 |
|
Hættu áður en þú byrjar – Eftirfylgd, nemendur og foreldrar barna í 10. bekk |
200.000 |
|
Íþrótta- og ólympíusamband Íslands – Siðfræði þjálfarans |
200.000 |
|
KFUM og KFUK – Tveggja hæða strætisvagn |
200.000 |
|
Róda/Hrósa – „Þegar mamma og pabbi drekka“ |
200.000 |
|
Stýrihópur um forvarnir í Húnaþingi vestra – SOS-hjálp fyrir foreldra |
200.000 |
|
Tollstjórinn í Reykjavík – Fræðslufyrirlestur tollvarðar ásamt fíkniefnaleitarhundi |
200.000 |
|
Tún – Menningar- og kaffihús fyrir ungt fólk á Húsavík |
200.000 |
|
Listauki – Listahátíð ungs fólks í Vestmannaeyjum |
100.000 |
|
Samráðshópur um miðbæjarathvarf – Fræðslubæklingur |
100.000 |
|
Lindaskóli-Hjallaskóli – Klúbbar fyrir nemendur sem eru án vímuefna |
100.000 |
|
Styrkir til verkefna samtals |
34.600.000 |
|
|
|
|
Áfangaheimili |
|
|
Dyngjan |
2.500.000 |
|
Risið |
2.500.000 |
|
Stoðbýlið Samhjálp |
1.000.000 |
|
Takmarkið |
1.000.000 |
|
Vernd fangahjálp |
1.000.000 |
|
12 spora húsið, líknarfélagið Skjöldur |
1.000.000 |
|
Byrgið |
500.000 |
|
Krossgötur |
500.000 |
|
Styrkir til áfangaheimila samtals |
10.000.000 |
|
|
|
|
Samtals úthlutað styrkjum 2004 |
44.600.000 |
Allar frekari upplýsingar eru veittar hjá Lýðheilsustöð, síma 585 1473.
