Sími : 5 800 900
Lýðheilsustöð

Heilsuáætlun Evrópusambandsins - opnað fyrir styrkumsóknir

7.3.2011

Health programme. Smellið á mynd til að opna vefsíðu fyrir heilsuáætlunina.

Opnað hefur verið fyrir nýjar styrkumsóknir vegna heilsuáætlunar Evrópusambandsins og er opið fyrir umsóknir til 27. maí n.k. Önnur heilsuáætlun ESB tók gildi 1. janúar 2008 og gildir í sex ár, eða til ársins 2013. Fjármagn sem er til ráðstöfunar vegna áætlunarinnar er 321,5 milljónir Evra á tímabilinu en því er ætlað að fjármagna samstarfsverkefni og aðgerðir sem stuðla að samstöðu og hagsæld innan ESB-landa.

Heilsuáætlun Evrópusambandsins (ESB) (Second Programme of Community Action in the Field of Health 2008-2013) skiptist í þrjú áherslusvið:

· Að auka öryggi sem tengist heilbrigði íbúanna

Að verja íbúana gegn heilsuógnum og efla getu Evrópusamfélagsins til að bregðast við smit- og langvinnum sjúkdómum. Einnig heilsuógnum af ytri, efna- og líffræðilegum toga, þar með talin efna-hryðjuverk. Stuðla að bættu heilsuöryggi íbúanna með því að efla aðgerðir sem tengjast öryggi sjúklinga, s.s. með betri heilbrigðisþjónustu, vísindastarfi og áhættumati.

· Að efla heilsu og draga úr ójöfnuði sem tengist heilsu

Aðgerðir með áherslu á mikilvæga þætti sem hafa áhrif á heilsu, s.s. næringu, hreyfingu, vímuefnaneyslu og kynheilbrigði. Aðgerðir til varnar alvarlegum sjúkdómum og áhersla á samfélagslegar aðgerðir sem tengjast kyni, heilsu barna eða sjaldgæfum sjúkdómum. Efla leiðir til sem stuðla að heilbrigðu lífi og draga úr ójöfnuði, stuðla að fleiri góðum æviárum og heilbrigðri öldrun, efla og bæta líkamlegt og andlegt heilbrigði. Umfjöllun um áhrif á heilbrigði vegna félagslegra og umhverfislegra þátta.

· Að útbúa og miðla heilbrigðisupplýsingum og þekkingu

Skiptast á þekkingu og bestu aðferðum um málefni heilsu og efla þannig evrópska gagnagrunna. Safna, greina og miðla heilbrigðisupplýsingum, með áherslu á skráningu heilsufarsupplýsinga með viðeigandi heilsuvísum. Leiðir til þess að miðla upplýsingum til íbúanna; upplýsingaveitur, ráðstefnur og útgáfur á skýrslum um heilbrigðisástand innan ESB.

Tengiliður á Íslandi

Lýðheilsustöð er tengiliður áætlunarinnar á Íslandi og hefur Jóhann Þór Halldórsson, skrifstofustjóri, þennan þátt með höndum: netfang: johann@lydheilsustod.is

Á heimasíðu framkvæmdastjórnar áætlunarinnar eru nánari upplýsingar um flest atriði sem snúa að umsóknum og öðru er málið varðar. http://ec.europa.eu/eahc/



 

Senda grein







Þetta vefsvæði byggir á Eplica