Heilsuverndarstöðin hýsir nýju stofnunina
Ákveðið hefur verið að ganga til samninga við eigendur Heilsuverndarstöðvarinnar, Barónsstíg 47, um leigu á hluta af húsnæðinu fyrir nýja stofnun, sem verður til við sameiningu Lýðheilsustöðvar og Landlæknisembættisins.
Þess má geta að við stofnun Lýðheilsustöðvar, 2003, var stöðin til húsa í Heilsuverndarstöðinni að hluta til og Landlæknir, Geir Gunnlaugsson, starfaði um árabil í þessu sögufræga húsi.
Eins og fram hefur komið er nú unnið að sameiningu stofnananna tveggja en gert er ráð fyrir að ný stofnun taki til starfa 1. janúar 2011. Margs konar undirbúningsvinna fer nú fram vegna sameiningarinnar, m.a. eru að störfum hópar, með fulltrúum beggja stofnananna, sem hafa umsjón með hagnýtum atriðum sem snerta sameininguna. Í dag er starfsdagur hjá stofnununum þar sem horft er til framtíðar og hugað að störfum og stefnu nýju stofnunarinnar.
Í heilbrigðisráðuneytinu er unnið að lagafrumvarpi um nýju stofnunina. Stefnt er að því að frumvarpið verði lagt fyrir Alþingi á haustþingi.
